Innlent

Leiðir aðildar­fé­laga Starfs­greina­sam­bandsins gætu skilið við samninga­borðið

Heimir Már Pétursson skrifar
Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambandsins (SGS).
Björn Snæbjörnsson er formaður Starfsgreinasambandsins (SGS).
Formaður Starfsgreinasambandsins segir hvert aðildarfélag hvenær sem er geta afturkallað samningsumboð sitt til sambandsins en deildar meiningar eru milli félaganna hvort vísa beri kjaradeilu þeirra við Samtök atvinnulífsins strax til ríkissáttasemjara. Forsætisráðherra segir stjórnvöld aldrei hafa haft eins mikið samráð við aðila vinnumarkaðarins á undanförnum árum og nú.

Formenn átján aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins funduðu á föstudag þar sem tekist var á um hvort vísa ætti kjaradeilu félaganna við Samtök atvinnulífsins nú þegar til ríkissáttasemjara eða staldra við um sinn í viðræðunum við atvinnurekendur. Ellefu félög vildu láta reyna frekar á viðræður án aðildar ríkissáttasemjara en sjö félög, þeirra á meðal fjölmennasta félagið Efling, vildu vísa málinu til ríkissáttasemjara.

Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að á samninganefndarfundi á þriðjudag hafi verið ákveðið að formenn færu með þessa ákvörðun til félaga sinna og þetta hafi síðan orðið niðurstaðan. Það eigi svo eftir að koma í ljós hvort þetta verði til þess að skilji með aðildarfélögum við samningaborðið og einhver félög afturkalli veitingu samningsumboðs til Starfsgreinasambandsins.

„Það eru deildar meiningar. Það kom mjög vel fram á fundinum að menn voru ekki alveg samtaka í þessu. Þannig að auðvitað ræða menn við sín baklönd um hvað þeim finnst eðlilegt að gera,” segir Björn.

Kjarasamningar renna formlega út um áramót en það gerist sjaldan að nýir samningar taki við um leið og eldri samningar renna út.

„Það eru viðræður í gangi við Samtök atvinnulífsins. Við ætlum að funda næst á fimmtudaginn og svo er spurning að halda áfram strax eftir áramótin. Við formenn innan Starfsgreinasambandsins munum einnig hittast eftir áramótin og skoða stöðuna upp á nýtt,” segir Björn.

Þá hefur Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Akraness, sakað stjórnvöld um skeytingarleysi í tengslum við kjarasamninga.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vísaði þessu á bug í Bítínu á Bylgjunni í morgun. Það hafi aldrei á undanförnum árum verið haft eins mikið samráð við aðila vinnumarkaðarins og undanfarið ár. Fundað verði með þessum aðilum á morgun. Margar nýlegar aðgerðir stjórnvalda eigi rætur í þessum samtölum við aðila vinnumarkaðarins.

„Ég get nefnt að við hækkuðum atvinnuleysisbætur og greiðslur úr ábyrgðasjóði launa núna á vormánuðum. Sem skiptir máli þegar við sjáum fjöldauppsagnir eins og nú í vikunni. Þetta skiptir gríðarlegu máli þegar þannig áföll ber að garði. Þetta var risabaráttumál einmitt frá verkalýðshreyfingunni þótt það hafi verið í tíð fyrri forystu. Á þessu ári lögðum við niður hið margfræga kjararáð. Við erum að fara yfir í hið norræna kerfi þegar kemur að því að ákvarða laun æðstu embættismanna. Sem þýðir að laun þeirra muni hreinlega fylgja launaþróun á hinum opinbera vinnumarkaði. Það verða ekki afturvirkir úrskurðir í stökkum heldur mun þetta fylgja almennri launaþróun á opinberum markaði,” sagði Katrín.

Þá væri verið að auka framlög í barnabótakerfið þannig að þeim fjölgi um 2.200 sem rétt eigi á barnabótum. Þá væri verið að lækka tryggingagjaldið sem skipti lítil og meðalstór fyrirtæki miklu máli.


Tengdar fréttir

Raunverulegar kerfisbreytingar lykill að sátt á vinnumarkaði

Formaður VR segir að það ætti að skýrast í lok vikunnar hvort samningsaðilar nái saman eða kjaraviðræðum verði vísað til ríkissáttasemjara. Launaliðurinn hafi þegar verið ræddur lítillega en ýmis mál séu í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×