Viðskipti innlent

Færsluhirðir WOW air heldur meiru eftir af fjárhæð fargjalda

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Skúli  Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air.
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air.
Færsluhirðir WOW air heldur nú eftir umtalsvert stærri hluta en áður af fargjöldum sem farþegar flugfélagsins greiða þangað til flugferð hefur verið farin. Þetta kemur fram í bréfi sem félagið skrifaði skuldabréfaeigendum sínum síðasta föstudag.

Aukin varfærni færsluhirðisins er í bréfinu nefnd sem dæmi um þá vaxandi íhaldssemi sem hefur gætt á meðal kröfuhafa WOW air undanfarna mánuði. Afleiðingin sé sú að þau kjör sem flugfélaginu bjóðist hafi farið versnandi.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í sumar að færsluhirðar skilgreindu áhættu gagnvart íslensku flugfélögunum með afar mismunandi hætti. Í tilfelli Icelandair skilaði fjárhæð fargjalda sér yfirleitt strax inn á reikninga félagsins en í tilfelli WOW air héldu færsluhirðarnir eftir 80 til 90 prósentum af fjárhæðinni þar til flugferð hefði verið farin.

Í bréfi WOW air til skuldabréfaeigendanna, þar sem greint er frá fyrirhugaðri fjárfestingu Indigo Partners í félaginu fyrir allt að 75 milljónir dala, um 9,2 milljarða króna, er tekið fram að fjárfestingin sé háð því að eigendur skuldabréfanna samþykki ákveðnar breytingar á skilmálum bréfanna.

Ein breytingin felst í því að heimila flugfélaginu að greiða hluthöfum sínum – sem verða þeir Skúli Mogensen, forstjóri og núverandi eigandi, og Indigo ef kaup síðarnefnda félagsins ganga eftir – sérstaka þóknun (e. management fee) upp á allt að 1,5 milljónir dala, jafnvirði um 184 milljóna króna, á ári.

Til viðbótar munu skuldabréfaeigendurnir kjósa um lengingu á lánstímanum úr þremur árum í fimm ár og niðurfellingu kaupréttar þeirra að hlutafé í flugfélaginu, svo dæmi séu nefnd. Atkvæðagreiðslunni lýkur 17. janúar.

Eins og fram kemur í bréfi WOW air áformar Indigo Partners að kaupa „einhver“ hlutabréf í flugfélaginu sem og gefa út breytanleg skuldabréf til þess að styðja við uppbyggingu félagsins til framtíðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×