Lífið

Gerði pakkaþjófum óleik með glimmer og prumpulykt

Samúel Karl Ólason skrifar
Pakkaþjófur opnaði gildruna í bíl sínum.
Pakkaþjófur opnaði gildruna í bíl sínum.
Verkfræðingurinn Mark Rober varð reiður þegar þjófar stálu pakka frá heimili hans. Lögreglan sagðist ekkert geta gert þó hann væri með upptöku af parinu sem stal af honum. Því ákvað hann að leggja gildru fyrir þjófana en fyrst þurfti hann að hanna og búa slíka gildru til. Þar kom ferill Rober sér vel, því hann vann hjá NASA og hannaði búnað sem er um borð í Curiosity, vélmenni NASA á Mars.

Rober hefur sömuleiðis hannað ýmislegt annað og hefur getið sér gott orð á Youtube, þar sem hann deildi myndbandi af þróun gildrunnar og því þegar þjófar féll í gildruna.

Hann útbjó kassa með hreyfiskynjara, símum til að taka upp myndbönd, glimmersprengju og prumpuspreyi. Prumpuspreyinu var ætlað að tryggja að þjófarnir hentu kassanum svo Rober gæti sótt hann aftur, því auðvitað var einnig staðsetningartæki í honum. Pakkinn spreyjar prumpulykt með nokkurra sekúndna millibili.

Gildran heppnaðist svo vel að nágranni Rober fékk hana lánaða og skildi hana eftir fyrir utan heima hjá sér og viti menn, hún virkaði aftur og aftur og aftur. Fjölmargir pakkaþjófar virðast hafa fallið í gildruna.

Afraksturinn má sjá hér að neðan.

Þjófnaður sem þessi, þar sem þjófar stela pökkum af lóðum fólks, verða sífellt algengari í Bandaríkjunum með tíðari heimsendingaþjónustu eins og til dæmis Amazon býður upp á. BBC segir Amazon vera að vinna með lögreglu í Bandaríkjunum til að sporna gegn þjófnaði og þá sérstaklega í New Jersey.

Lögregluþjónar hafa komið gervipökkum fyrir víða sem innihalda staðsetningarbúnað og myndavélum til að taka þjófana upp. Einum slíkum pakka var stolið á innan við þremur mínútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×