Innlent

Veigra sér við að fara til læknis vegna fjárskorts

Sveinn Arnarsson skrifar
Margir virðast fresta læknisheimsóknum vegna þess að þeir hafi einfaldlega ekki efni á því.
Margir virðast fresta læknisheimsóknum vegna þess að þeir hafi einfaldlega ekki efni á því. Fréttablaðið/Auðunn
Fjörutíu prósent félagsmanna í verkalýðsfélaginu Einingu-Iðju hafa á síðustu tólf mánuðum frestað því eða hætt við að fara til tannlæknis af fjárhagsástæðum. Fjórðungur félagsmanna hefur hætt við að fara til læknis af sömu ástæðum.

„Þetta eru nokkuð sláandi niðurstöður,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju.

Eining Iðja er stærsta stéttarfélagið á Norðurlandi. Félagssvæði þess er í Eyjafirði og liggur frá Fjallabyggð í vestri til Grýtubakkahrepps í austri.

Í yfirstandandi kjaraviðræðum leggja verkalýðsfélög áherslu á að tryggja öfluga heilbrigðisþjónustu fyrir félaga sína. Á síðasta þingi ASÍ var jafnframt samþykkt sú stefna að efla grunnstoðir heilbrigðiskerfisins og tryggja að allir hafi aðgang að öflugri heilsugæslu í heimabyggð og aðgang að lyfjum.

Af niðurstöðum könnunar meðal félagsmanna sést marktækur munur á svörum eftir aldri. Yngra fólk er líklegra til að hafa ekki efni á læknisheimsóknum, að taka út lyf í apótekum eða að fara til tannlæknis. Ungt fólk á barneignaraldri frestar þessu marktækt oftar en aðrir.

„Þetta er auðvitað innlegg í þær kjaraviðræður sem við erum í núna. Það er sláandi að sjá að fjórðungur félagsmanna okkar frestar því að fara til læknis og því er þetta eitt af þeim atriðum sem við verðum að tryggja félagsmönnum okkar í komandi kjaraviðræðum, það er aðgangur að heilbrigðisþjónustu,“ segir Björn.

„Það kom okkur líka töluvert á óvart að sjá að unga fólkið á í hvað mestum erfiðleikum með þetta og virðist forgangsraða hlutunum á þennan hátt sem er auðvitað bagalegt.“

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að stjórnvöld muni á valdatíma sínum draga úr greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. 

Mynd/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×