Handbolti

Patrekur tekur við dönsku meisturunum í Skjern í júlí

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrekur Jóhannesson.
Patrekur Jóhannesson. Vísir/Daníel
Patrekur Jóhannesson hættir með Selfoss í vor og tekur við dönsku meisturunum í Skjern en austurríska handboltasambanið tilkynnti um þetta á heimasíðu sinni í morgun. Patrekur er að taka við starfinu af Ole Nørgaard sem hefur stýrt danska liðinu frá 2012.

Patrekur gerir þriggja ára samning við Skjern og tekur við liðinu þann 1. júlí næstkomandi en samningur hann við Selfoss rennur út í vor. Hann mun halda áfram að þjálfa austurríska landsliðið.





Patrekur er á sínu öðru tímabili með Selfossliðið en hann hefur einnig þjálfað austurríska landsliðið frá árinu 2011. Þetta verður annað erlenda félagsliðið sem hann þjálfar en Patrekur stýrði TV Emsdetten frá 2010-11.

Patrekur er 46 ára gamall og hefur verið að þjálfa handboltalið frá því að hann lagði skóna á hilluna fyrir tíu árum síðan. Ráðning Patreks er enn eitt dæmið um hversu eftirsóttir íslenskir handboltaþjálfarar eru á erlendri grundu.

Skjern varð danskur meistari á síðasta tímabili undir stjórn Ole Nörgaard en það hefur ekki gengið eins vel í vetur. Skjern er eins og er í 7. sæti dönsku deildarinnar með 9 sigra og 8 töp í 17 leikjum.

Skjern er líka í neðsta sæti í sínum riðli í Meistaradeildinni þegar fjórir leikir eru eftir en vann þó tvo fyrstu leikina sína á móti Celje og HK Motor.

Ole Nörgaard og Henrik Kronborg þjálfa Skjern saman í vetur en Nörgaard hefur þjálfað liðið undanfarin sjö tímabil.

Með Skjern spila tveir íslenskir leikmenn í dag, landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson og Tandri Már Konráðsson.

Í liðinu er líka norsku línumaðurinn Bjarte Myrhol og dönsku goðsagnirnar Anders Eggert og Kasper Söndergaard sem eru þó báðir farnir að nálgast fertugsaldurinn.

Thomas Mogensen snéri líka heima til Danmerkur og til Skjern í sumar eftir ellefu ár með Flensburg í þýsku deildinni.

Patrekur verður ekki fyrsti íslenski þjálfarinn hjá Skjern því Aron Kristkjánsson þjálfaði liðið með Anders Dahl-Nielsen frá 2004 til 2007. Aron lék líka með liðinu og varð danskur meistari með Skjern árið 1999.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×