Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Tryggð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Elma Lísa ásamt Enid Mbabazi og Raffaella Brizuela Sigurðardóttir.
Elma Lísa ásamt Enid Mbabazi og Raffaella Brizuela Sigurðardóttir.
Kvikmyndin Tryggð er fyrsta mynd Ásthildar Kjartansdóttur leikstjóra í fullri lengd. Myndin er byggð á Tryggðarpanti, skáldsögu Auðar Jónsdóttur, sem tilnefnd var til íslensku bókmenntaverðlaunanna 2006 í flokki fagurbókmennta, en kvikmyndin verður frumsýnd almenningi í febrúar 2019.

Myndin fjallar um konuna Gísella Dal sem fær tvær erlendar konur til þess að leigja hjá sér til að ná endum saman. Fyrst um sinn gengur sambúðin vel, en með tímanum fara menningarárekstrar að krauma upp á yfirborðið sem ógna valdi Gísellu, geði hennar og sjálfsmynd.

Með aðalhlutverk fara Elma Lísa Gunnarsdóttir, sem hefur farið með fjölda hlutverka bæði í kvikmyndum og leikhúsi á Íslandi, Enid Mbabazi og Raffaella Brizuela Sigurðardóttir sem eru báðar innflytjendur og óreyndar leikkonur, en sýna aðdáunarverða frammistöðu í myndinni.  Claire Kristinsdóttir fer einnig með stórt hlutverk í myndinni en hún er ung kona og er þetta frumraun hennar á hvíta tjaldinu.

Ásthildur Kjartansdóttir hefur gert fjölda heimildamynda, leikið sjónvarpsefni og stuttmyndir. Hún hefur áður fjallað um innflytjendur á Íslandi m.a. í heimildamynd sinni Nio&Pam.

Framleiðendur eru Askja Films og Rebella Filmworks en Sena sér um dreifingu á Íslandi en hér að neðan má sjá fyrstu stikluna úr kvikmyndinni, frumsýnda hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×