Innlent

Íbúar skammaðir fyrir snjómokstur

Sveinn Arnarsson skrifar
Frá Akureyri.
Frá Akureyri. Fréttablaðið/Auðunn
Akureyrarbær hefur gefið út tilkynningu til bæjarbúa um að þeim sé óheimilt að moka snjó frá heimilum sínum í botnlanga gatna, á gangstéttir eða aðra hluta gatna þar sem vegfarendur eiga leið um. Mikið fannfergi hefur verið norðanlands síðustu tvo sólarhringana og hafa margir þurft að moka snjó frá heimilum sínum.

Húsfélög stórra húsa moka bílaplön sín á eigin kostnað og oft er snjórinn ruddur í stóra skafla. Nú þarf hins vegar að moka honum upp á vörubíla og fara með hann á losunarsvæði með tilheyrandi aukakostnaði fyrir húsfélög sem og aukinni mengun af völdum stórra vinnuvéla á ferð um bæjarlandið.

Á vef Akureyrarkaupstaðar hefur verið sett upp kort þar sem losunarstaðir eru skilgreindir. Geta bæjarbúar keyrt með snjóinn á þessi skilgreindu snjólosunarsvæði, utan alfaraleiðar gangandi vegfarenda. Bæjarbúar hafa margir hverjir haft það á orði hvort þeir þurfi þá að setja snjóinn í svarta poka.

„Nokkuð hefur borið á því undanfarin ár að snjó hafi verið mokað á gangstéttir og aðra hluta gatna þar sem vegfarendur eiga leið um. Því var ákveðið að skilgreina snjólosunarsvæði og var það kynnt snjómokstursverktökum sem og bæjarbúum,“ segir Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar. „Við höfum fengið nokkrar athugasemdir við þetta fyrirkomulag í dag og förum við yfir málið eftir helgi. Við leggjum þó ríka áherslu á að tryggja öryggi gangandi vegfarenda á Akureyri.“

Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir frétt bæjarins í of neikvæðum tón. „Betra hefði verið að leiðbeina bæjarbúum um hvað skuli gera þegar snjómagnið er svo mikið,“ segir Gunnar. „Ég geri ráð fyrir að menn séu að tala um að tryggja öryggi gangandi fólks og að setja ekki of mikinn snjó í ruðninga. En það hefði mátt stilla málinu öðruvísi upp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×