Innlent

Ætla að starfa saman sem óháðir þingmenn utan flokka

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason ætla að starfa áfram sem óháðir þingmenn.
Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason ætla að starfa áfram sem óháðir þingmenn. Vísir/Friðrik Þór Halldórsson
Ólafur Ísleifsson, sem tók sæti á þingi fyrir Flokk fólksins eftir þingkosningar 2017, kveðst ætla að starfa áfram sem óháður þingmaður utan flokka en hann var rekinn úr Flokki fólksins ásamt Karli Gauta Hjaltasyni síðastliðinn föstudag.

„Ég er búinn að senda forseta Alþingis bréf og tilkynna honum að frá og með þessum degi starfa ég sem þingmaður utan flokka. Forseti Alþingis er búinn að staðfesta móttöku bréfsins og ég veit að Karl Gauti hefur sent sams konar bréf. Við ætlum að hafa með okkur samstarf óháðir utan flokka,“ segir Ólafur í samtali við Vísi.

Tvímenningarnir eru því ekki lengur í þingflokki Flokks fólksins en þeir geta ekki stofnað með sér nýjan þingflokk þar sem ákvæði er í þingsköpum um að að minnsta kosti þrír þingmenn skuli skipa þingflokk.

Ólafur var formaður þingflokks Flokks fólksins og Karl Gauti varaformaður en þegar Vísir náði tali af Ólafi rétt fyrir klukkan 10:30 kvaðst hann ekki vera á leið á þingflokksformannafund fyrir hönd Flokks fólksins þar sem hann væri orðinn óháður þingmaður. Fundur formanna þingflokka hófst klukkan 10:30. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mætti á fundinn.

Hafa ekki fengið boð um að koma í annan flokk

Þeir Ólafur og Karl Gauti voru á meðal sex þingmanna sem saman komu á barnum Klaustur þann 20. nóvember síðastliðinn en þar var meðal annars rætt um hæfni Ingu Sæland og sagði Karl Gauti hana ófæra um að stjórna.

Samræður þingmannanna sex, sem viðhöfðu niðrandi tal um fleiri en Ingu Sæland, náðust á upptöku en hinir fjórir þingmennirnir koma allir úr Miðflokknum. Á einni upptökunni má heyra að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, býður Ólafi að skipta um flokk og gerast þingflokksformaður Miðflokksins.

Aðspurður hvort að einhver flokkur á þingi hafi boðið þeim Ólafi og Karli Gauta að ganga í sínar raðir eftir að þeir voru reknir úr Flokki fólksins segir Ólafur svo ekki vera.

„Nei, það hefur ekki verið gert og það er ekki neitt slíkt uppi. Ég held að okkur sé bara best að vera utan flokka óháðir og halda áfram að reka þau mál sem við höfum beitt okkur fyrir. Við erum með alveg sæg af málum sem við erum að vinna í, bæði sem hafa komið fram og eru ókomin fram,“ segir Ólafur.


Tengdar fréttir

Segir þingfund hefjast á óhefðbundinn hátt

Fyrsti þingfundur eftir að samtal þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins var gert opinbert verður í dag. Kollegar þeirra leita nú leiða til að koma þingmönnunum í skilning um að þeir verði að víkja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×