Viðskipti erlent

Loka um hundrað verslunum á Norður­löndum og Þýska­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrr á árinu var greint frá því að Toys R Us hugðist loka öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum.
Fyrr á árinu var greint frá því að Toys R Us hugðist loka öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum. Getty/Portland Press Herald
Norræni leikfangarisinn Top-Toy, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Toys ‘R‘ Us og BR, er í miklum fjárhagsvandræðum og hyggst loka um hundrað verslunum á Norðurlöndum og í Þýskalandi. Samfara lokunum verður 450 manns sagt upp.

Þetta kom fram í dönskum fjölmiðlum á föstudaginn. Framkvæmdastjórinn Per Sigvardsson segir í samtali við DR að nauðsynlegt sé að bregðast við stöðinni með þessum hætti, en félagið birti ársreikning sinn í síðustu viku.

Félagið rekur þrjár verslanir undir merkjum Toys ‘R‘ Us á Íslandi – Í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að ekki séu „neinar áætlanir áætlanir um að loka verslunum á Íslandi“.

DR segir frá því að tólf verslunum verði lokað í Danmörku og 180 manns sagt upp. Alls rekur félagið 77 verslanir undir merkjum BR í Danmörku og 21 Toys ‘R‘ Us verslun. 26 verslunum verður lokað í Svíþjóð og í Þýskalandi verður öllum verslunum félagsins lokað. Verslunum verður lokað á fyrsta ársfjórðungi næsta árs.

Fyrr á árinu var greint frá því að Toys R Us hugðist loka öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×