Viðskipti innlent

Bogi Nils áfram forstjóri Icelandair

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bogi Nils Bogason var áður starfandi forstjóri Icelandair Group.
Bogi Nils Bogason var áður starfandi forstjóri Icelandair Group. Stöð 2
Bogi Nils Bogason hefur verið ráðinn forstjóri Icelandair Group. Stjórn félagsins segist í tilkynningu hafa gengið frá ráðningu hans en Bogi hefur verið starfandi forstjóri Icelandair frá því í lok ágúst síðastliðnum. Hann tók þá við starfinu af Björgólfi Jóhannessyni.

Haft er eftir Boga í tilkynningunni að þetta sé honum mikill heiður. „Framundan eru bæði spennandi og krefjandi tímar fyrir félagið, sem kalla á skýra framtíðarsýn og hagkvæman rekstur. Icelandair Group hefur styrkar stoðir sem byggt verður á til sóknar á næstu misserum.“

Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, segir að eftir að Björgólfur lét af störfum hafi farið af stað „faglegt ferli við leit að eftirmanni hans.“ Capacent á Íslandi og alþjóðlega ráðningarfyrirtækið Spencer Stuart hafi komið að ferlinu og eiga margir einstaklingar, bæði íslenskir og erlendir, að hafa sýnt starfinu áhuga. „Það var afdráttarlaus niðurstaða stjórnar að Bogi Nils sé hæfasti einstaklingurinn í starfið. Hann gjörþekkir fyrirtækið, hefur skýra framtíðarsýn og er vel til þess fallinn að stýra því til móts við nýja tíma,“ er haft eftir Úlfari.

Bogi Nils gegndi stöðu framkvæmdastjóra fjármála Icelandair Group frá október 2008. Áður var hann framkvæmdastjóri fjármála hjá Askar Capital 2007 til 2008 og framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group 2004 til 2006. Hann var endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG á árunum 1993 til 2004.

Bogi Nils er fæddur árið 1969 og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Hann er kvæntur Björk Unnarsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×