Innlent

Anna Kolbrún segir það ekki á hennar ábyrgð að stöðva tal drukkinna manna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Anna Kolbrún Árnadóttir
Anna Kolbrún Árnadóttir vísir/vilhelm
Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, ætlar ekki að segja af sér vegna þátttöku hennar í umræðum sexmenninganna úr hópi Flokki fólksins og Miðflokksins á barnum Klaustri á dögunum. Hún segir að það sé ekki á hennar ábyrgð að stöðva tal drukkinna manna.

Þetta segir Anna Kolbrún í viðtali við mbl.is þar sem hún segir að hún hafi fengið símtal umrætt kvöld og verið boðið að slást í hóp þeirra Gunnars Braga Sveinssonar, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Bergþórs Ólasonar, þingmanna Miðflokksins og Ólafs Ísleifssonar og Karls Gauta Hjaltasonar, þingmanna Flokks fólksins.

Fjölmiðlar hafa að undanförnu fjallað um þau ummæli sem látin voru falla í samtali þingmannanna. Rætt var á ónærgætinn hátt um aðra þingmenn á Alþingi sem og þjóðþekkta einstaklinga. Áfengi var haft um hönd þá rúmu þrjá tíma sem þingmennirnir sátu að sumbli. Þingmennirnir voru þó mislengi á barnum og segir Anna Kolbrún að hún hafi verið með þeim fyrstu til þess að yfirgefa samsætið, ásamt Ólafi.

Anna Kolbrún Árnadóttir vildi lítið ræða við fréttamann á leið sinni frá nefndarsviði Alþingis og yfir í þinghúsið í gærVísir/Vilhelm
Segist hún hafa sagt við Ólaf er þau yfirgáfu samsætið að „þetta væri of mikið“ og vísar þar í samræður þeirra sem eftir sátu.

„Ég geri mér grein fyrir því að ég lét þetta viðgangast. En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyrir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukknir menn tala. Ég hefði átt að fara fyrr en ég gerði. Það eru alveg ótrúlega mörg „Ég hefði“,“ segir Anna Kolbrún í samtali við Mbl.is.

Ætlar ekki að segja af sér

Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná tali af Önnu Kolbrúnu án árangurs undanfarna daga og segist hún í viðtalinu við Mbl.is hafa legið undir feldi til þess að íhuga stöðu sína. Hún hafi hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að hún ætli ekki að segja af sér þingmennsku vegna málsins.

Hún segir einnig að síðustu dagar hafi tekið verulega á sig og hún hafi aldrei grátið eins mikið og að undanförnu. Hún hafi meðal annars brostið í grát á þingflokksfundi.

Anna Kolbrún mætir í viðtal í Bítið á morgun klukkan 8.05 ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, til að fara yfir málið eins og það horfir við þeim tveimur.


Tengdar fréttir

Sunna segir Önnu Kolbrúnu hafa verið litla í sér

Fundi formanna þingflokkanna með forseta Alþingis lauk á skrifstofum Alþingis á tólfta tímanum. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, sagði að nefndin væri einhuga um meðferðina sem málið ætti að fara.

Þingmenn á Klaustri svara ekki

Þing kom saman í fyrsta skipti í gær eftir að samtal sex þingmanna á Klaustri komst í fjölmiðla. Forseti braut blað í sögu þingsins og bað þjóðina afsökunar á hegðun þingmanna sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×