Handbolti

Seinni bylgjan: Drulluleiður á því að það sé endalaust gengið fram hjá honum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Daníel Freyr Andrésson.
Daníel Freyr Andrésson. Vísir/Vilhelm
Daníel Freyr Andrésson hefur átt frábæra endurkomu í Olís deild karla í handbolta í vetur og á mikinn þátt í því að Valsmenn eru það lið sem hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni.

Daníel Freyr kom heim úr atvinnumennsku og hefur hvað eftir annað lokað marki Valsmanna á mikilvægum tímapunktum.

Seinni bylgjan fjallaði sérstaklega um frammistöðu Daníels Freys Andréssonar í sigri Vals á toppliði Haukum í stórleik ellefu umferðar.

Logi Geirsson, einn sérfræðinganna í Seinni bylgjunni vill að Daníel Freyr fái að fara með íslenska landsliðinu á HM í Þýskalandi og Danmörku í byrjun næsta árs.

„Munurinn á liðunum í dag var Daníel Freyr Andrésson. Ég er orðinn drulluleiður á því að það sé endalaust gengið fram hjá honum,“ sagði Logi Geirsson og bætti við: „Þá á ég við landsliðið til dæmis,“ sagði Logi.

„Ég sagði það í upphitunarþættinum að þetta yrði besti maðurinn. Þú sagðir Ásgeir Örn,“ sagði Logi og benti á Jóhann Gunnar Einarsson, hinn sérfræðinginn í settinu, og hélt svo áfram „en ég sagði Daníel“

„Sjáið bara hvað Daníel er að skila. Hvað er hann kominn með marga leiki í röð með 40 prósent markvörslu? Ég vil ekki að það sé gengið framhjá þessum gæja. Ég vil sjá hann fá tækifæri í landsliðinu. Hann er það góður,“ sagði Logi.

Það má sjá alla umfjöllun Seinni bylgjunnar um Daníel Freyr og markmannsmál landsliðsins hér fyrir neðan.



Klippa: Seinni bylgjan: Daníel í landsliðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×