Sport

Tölfræðin segir að Gunnar Nelson vinni með uppgjafartaki

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson er einn sá allra besti í heiminum í gólfglímu.
Gunnar Nelson er einn sá allra besti í heiminum í gólfglímu. vísir/getty
Gunnar Nelson snýr aftur í búrið aðfaranótt sunnudagsins í Kanada eftir tæplega eins og hálfs árs fjarveru, meðal annars vegna meiðsla. Gunnar tapaði síðast þegar að hann barðist á móti augnpotaranum Santiago Ponzinibbio í Glasgow.

Andstæðingur Gunnars í Toronto um helgina er Brasilíumaðurinn Alex Oliveira sem er í þrettánda sæti á styrkleikalista veltivigtarinnar í UFC, sæti fyrir ofan Gunnar sem þarf á sigri að halda í þessum bardaga.

Tölfræðisíðan The Statz Zone spáir Gunnari sigri á laugardagsnóttina en þegar rýnt er í tölurnar kemur í ljós að íslenski bardagakappinn er betri. Tölurnar skila þó litlu þegar í búrið er komið.

Gunnar gengur aftur í búrið aðfaranótt sunnudags eftir hálft annað ár í burtu.vísir/getty
Oliveira er mun meiri rotari en Gunnar. Brassinn hefur unnnið 19 bardaga og klárað þrettán með rothöggi en aðeins fjóra með uppgjafartaki. Gunnar hefur rotað þrjá en klárað tólf með uppgjafartaki.

Þegar horft er til standandi bardaga þar sem menn reyna að kýla hvorn annan kemur í ljós að Gunnar er ekkert mikið síðri en Oliveira. Brassinn landar fleiri höggum á hverri mínútu (2 á móti 1) og fær færri á sig á hverri mínútu (2,1 á móti 3,7).

Gunnar er aftur á móti hittnari og landar 56,8 prósent högga sinna á meðan Oliveira hittir andstæðinginn í 53 prósent högga sinna. Þá er standandi vörn Gunnars betri en Brassans.

Þegar litið er til gólfglímunnar er Gunnar töluvert betri en Oliveira og er yfir í þremur helstu tölfræðiþáttunum  af fjórum.

Gunnar er með mun betri nákvæmni í fellum sínum, verst fellum andstæðingsins miklu betur og klárar fleiri bardaga með uppgjafartaki. Oliveira tekur menn þó oftar niður en nær ekki að klára þá í gólfinu.

Lykiltölfræðin, segir Stats Zone, vera nákvæmni högga og meðaltal uppgjafartaka en þar er Gunnar Nelson með betra skor og er honum því spáð sigri með uppgjafartaki eins og hann klárar flesta bardaga sína.

mynd/stats zone
MMA

Tengdar fréttir

Gunnar: Hefur aldrei liðið betur

Gunnar Nelson segir sér aldrei hafa liðið betur en eftir að hann fór að vinna markvisst með styrktarþjálfara. Gunnar mætir aftur í búrið um helgina.

Bardagavikan hafin á fullu hjá Gunnari

Eftir að hafa hlaðið aðeins rafhlöðurnar í sveitum Kanada er Gunnar Nelson kominn aftur til Toronto og verður nóg að gera næstu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×