Innlent

Skrifstofustjóri Alþingis harmar ummæli Önnu Kolbrúnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir í stúdíói Bylgjunnar í gærmorgun.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir í stúdíói Bylgjunnar í gærmorgun. vísir/vilhelm
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, harmar ummæli Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun en þar sagði hún að mjög sérstakur kúltúr væri á Alþingi.

Í tilkynningu frá skrifstofustjóra segir að á orðum hennar hafi mátt skilja að starfsmenn Alþingis væru hluti af þessum sérstaka kúltúr.

„Sem skrifstofustjóri Alþingis, og fyrirsvarsmaður starfsmanna þess, vil ég mótmæla þessum ummælum og að starfsmenn Alþingis séu á einn eða annan hátt dregnir inn í þá umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum um samtöl nokkurra þingmanna um samþingsmenn sína og fleiri á veitingahúsi í nágrenni þingsins,“ segir tilkynningu Helga.

Anna Kolbrún var í viðtali á Bylgjunni í gærmorgun ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þar sem þau ræddu Klaustursmálið svokallaða. Þar sagði Anna Kolbrún meðal annars:

„Það er þannig að þegar fólk byrjar á nýjum vinnustað þá sogast það inn í kúltúrinn sem fyrir er. Við höfum stundum haldið að þetta séu alþingismenn sem skapa þennan kúltúr,“ sagði Anna Kolbrún. Það væru hins vegar ekki aðeins þingmenn.

„Það er ábyggilega mjög óáþreifanlegt. Það eru allir að vinna vel. Ég get ekki sagt einhverjar persónur eða eitthvað slíkt. En það er alveg klárt mál að við þurfum, ég veit ekki hvort það misskilst ef ég segi að við þurfum að hjálpast að, ég er að tala um stofnunina Alþingi. Starfsmennirnir eru líka mannlegir. Þeir fara líka inn í þennan kúltúr því þeir eru líka mannlegir,“ sagði Anna Kolbrún en bætti við að hún hefði aldrei kynnst jafn almennilegum og hjálpsömum starfsmönnum og þeim á skrifstofu Alþingis. Þetta væri eitthvað óáþreifanlegt í kúltúr þingsins.

Vonar að ummælin séu mælt í ógætni

Í tilkynningu skrifstofustjóra Alþingis segir að þegar starfsmenn hefja störf þar þá er brýnt fyrir þeim að sýna háttvísi í hvívetna og koma fram gagnvart þingmönnum og öðrum starfsmönnum af virðingu og nærgætni í orðum og allri framkomu.

„Á þetta er jafnframt minnt á starfsmannafundum skrifstofunnar. Ég man ekki til þess að undan starfsmönnum hafi verið kvartað að þessu leyti. Starfsmenn skrifstofu Alþingis leggja metnað sinn í að sinna störfum sínum af einlægni og fagmennsku.

Ég harma þessi ummæli þingmannsins, því að þau eiga ekki við rök að styðjast, og vona að þau séu mælt í ógætni, enda fylgdu með þakklætis- og hrósyrði um starfsmennina sem þakka ber,“ segir í tilkynningu skrifstofustjórans sem lesa má í heild sinni hér fyrir neðan:

Sem skrifstofustjóri Alþingis, og fyrirsvarsmaður starfsmanna þess, vil ég mótmæla þessum ummælum og að starfsmenn Alþingis séu á einn eða annan hátt dregnir inn í þá umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum um samtöl nokkurra þingmanna um samþingsmenn sína og fleiri á veitingahúsi í nágrenni þingsins.

Þegar starfsmenn hefja störf á Alþingi er brýnt fyrir þeim að sýna háttvísi í hvívetna og koma fram gagnvart þingmönnum og öðrum starfsmönnum af virðingu og nærgætni í orðum og allri framkomu. Á þetta er jafnframt minnt á starfsmannafundum skrifstofunnar. Ég man ekki til þess að undan starfsmönnum hafi verið kvartað að þessu leyti. Starfsmenn skrifstofu Alþingis leggja metnað sinn í að sinna störfum sínum af einlægni og fagmennsku.

Ég harma þessi ummæli þingmannsins, því að þau eiga ekki við rök að styðjast, og vona að þau séu mælt í ógætni, enda fylgdu með þakklætis- og hrósyrði um starfsmennina sem þakka ber.



Fréttin hefur verið uppfærð.




Tengdar fréttir

Segist læra af Klausturs­málinu með því að sitja á­fram á þingi

Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins og einn sexmenninganna sem sátu á Klaustur bar þann 20. nóvember síðastliðinn og töluðu á óviðeigandi hátt meðal annars um samþingmenn sína, segir að sér finnist það ekki skrýtið að fólk vilji að hún segi af sér þingmennsku vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×