Viðskipti erlent

Kanada sver af sér tengsl við handtökuna

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Meng Wanzhou var stöðvuð þegar hún millilenti í Kanada í upphafi mánaðarins.
Meng Wanzhou var stöðvuð þegar hún millilenti í Kanada í upphafi mánaðarins. Vísir/Epa
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir að ríkisstjórn hans hafi ekki komið nálægt handtökunni á Meng Wanzhou, fjármálastjóra kínverska tæknifyrirtækisins Huawei. Meng var handtekinn á flugvellinum í Vancouver á laugardag. BBC greinir frá.

Meng var handtekinn er hún var á leið í tengiflug aðbeiðni bandarískra yfirvalda. Kínversk yfirvöld eru mjög ósátt við handtökuna og segja yfirvöld í Kanada hafa brotið á mannréttindum hennar.

Ekki er mikið vitað um ástæðu handtökunnar en talið er líklegt að hún tengist rannsókn bandarískra yfirvalda á mögulegum brotum á viðskiptabanni við Íran.

Þrátt fyrir að hafa verið handtekinn á laugardaginn var ekki greint frá handtökunni fyrr en í gær er hún mætti í dómsal.

Trudeau segir að ríkisstjórn hans hafi vitað að til stæði að handtaka Meng en að ríkisstjórn hafi ekki fyrirskipað hana eða skipt sér af henni á neinn hátt. 

Huawei varð nýverið næst stærsti símaframleiðandi heimsins. Vestræn ríki hafa þó tekið upp á því að hætta að nota tækni og búnað Huawei vegna ásakana um að yfirvöld Kína stundi njósnir í gegnum fyrirtækið.AP/Ng Han Guan
John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, sagðist einnig hafa vitað af handtökunni fyrirfram en vildi lítið segja um hana. Hann sagði þó að árum saman hafi bandarísk yfirvöld óttast það að kínversk fyrirtæki væru að nota stolna tækni og þekkingu frá Bandaríkjunum. Sagði hann einnig að Huawei væri eitt af þeim fyrirtækjum sem bandarísk yfirvöld hefðu áhyggjur af í tengslum við þetta.

Mun eflaust torvelda flóknar viðræður

Kínversk yfirvöld hafa krafist skýringa á handtökunni frá yfirvöldum í Bandaríkjunum og Kanda og kallað eftir því að Meng verði sleppt úr haldi. Þá segist Huawei ekki hafa vitneskju um annað en að fyrirtækið hafi í hvívetna fylgt lögum og reglugerðum við starfsemi sína.

Talið er að handtakan kunni að torvelda samningaviðræður kínverskra og bandarískra stjórnvalda. Þau reyna nú að ná lendingu í erfiðu viðskiptastríði sín á milli sem kostað hefur ríkin milljarða bandaríkjadala á síðustu mánuðum.

Eftir fund Bandaríkja- og Kínaforseta á G20-ráðstefnunni á dögunum féllust ríkin á 90 daga „vopnahlé“ sem nýtt yrði til samningaviðræðna um framtíð viðskiptasambands þeirra. Miklar vonir eru bundnar við viðræðurnar en ekki verður séð að handtakan muni auðvelda þær á nokkurn hátt.


Tengdar fréttir

Markaðir taka ekki vel í tíst Trump um að hann sé „tollamaður“

Svo virðist sem að viðskiptasamningur Kína og Bandaríkjanna sem hyllti undir um helgina séu í hættu eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi út röð tísta um að hann væri "tollamaður“. Markaðir í Bandaríkjunum hafa hvorki tekið vel í tíst Trump né vangaveltur um að ekkert verði af samningum á milli ríkjanna tveggja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×