Torreira hetjan í naumum sigri Arsenal

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Vísir/Getty
Arsenal fékk Huddersfield í heimsókn á Emirates leikvanginn í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Bjuggust eflaust margir við að Arsenal myndi raða inn mörkum á Huddersfield enda mikill munur á spilamennsku liðanna upp á síðkastið.

Leikurinn var hins vegar markalaus alveg fram á 83.mínútu þegar úrugvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira skoraði eftir undirbúning Pierre-Emerick Aubameyang.

Reyndist það eina mark leiksins og Arsenal þar með komið upp í 3.sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira