Handbolti

Þægilegt hjá Þjóðverjum

Þjóðverjarnir fagna
Þjóðverjarnir fagna mynd/ehf
Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Spánverjum í milliriðli tvö á EM í handbolta í Frakklandi.

Spánverjar komu stigalausir inn í milliriðilinn og eru það áfram eftir 23-29 tap. Staðan í hálfleik var 9-17 fyrir Þjóðverjum og því ljóst í hvað stefndi snemma leiks.

Þýska liðið dreifði markaskoruninni nokkuð jafnt sín á milli og voru þær Meike Schelzer, Emily Bolk og Angie Geschke jafnar markahæstar með fjögur mörk, þrír leikmenn skoruðu þrjú mörk.

Þjóðverjar halda því í við topplið riðilsins, Hollendinga og Rúmena, sem eiga þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×