Sport

Morgan: Þetta er stórt kvöld fyrir Gunnar

Henry Birgir Gunnarsson í Toronto skrifar
John Morgan er viðkunnalegur náungi og gengur alltaf um í stuttbuxum. Sama hvernig veðrið er.
John Morgan er viðkunnalegur náungi og gengur alltaf um í stuttbuxum. Sama hvernig veðrið er.
John Morgan er einn af þekktustu MMA-blaðamönnum heims og er á öllum viðburðum UFC. Hann er spenntur að fá Gunnar Nelson aftur í búrið.

„Það er frábært að sjá Gunnar aftur og hann virkar í svaklegu formi. Hann er aftur á móti að berjast við stóran og erfiðan andstæðing að þessu sinni. Olivira er líka á sigurgöngu og með mikið sjálfstraust,“ segir Morgan en hann er ekki sá eini sem hefur heillast af Oliveira.

„Það sem gerir þetta spennandi er hvað Gunni er í flottu formi en Gunnar hefur verið lengi frá á meðan Oliveira hefur barist mikið. Gunnar hefur hæfileikana til þess að vinna bardagann en verður hann tilbúinn? Við munum sjá það. Þetta er mikil áskorun.“

Morgan velkist ekkert í vafa um að þetta sé gríðarlega mikilvægur bardagi fyrir Gunnar.

„Hér í Bandaríkjunum var mikið talað um hann er hann kom upp. Í þessari íþrótt þurfa menn stanslaust að vera á staðnum. Annars gleymast menn og aðrir taka við sviðsljósinu. Þetta er því stórt kvöld fyrir Gunnar,“ segir Morgan sem er ekkert allt of bjartur fyrir hönd okkar manns.

„Það sem er frábært við íþróttina er að allt getur gerst. Gunnar hefur gæðin til þess að vinna en ég verð að velja Oliveira því Gunni hefur verið lengi frá.“

Vísir er í Toronto og fylgist ítarlega með öllu í aðdraganda UFC 231. Bardagakvöldið með Gunnari er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í nótt.





Klippa: John Morgan um Gunnar Nelson
 

MMA

Tengdar fréttir

Ariel Helwani var búinn að sakna Gunnars

Þekktasti MMA-blaðamaður heims, Ariel Helwani, er vinsælli en margir bardagakappar UFC og setið um hann í viðtölum. Vísir náði að stela honum í smá tíma og hann fagnar endurkomu Gunnars Nelson.

Segir Gunnar geta farið fimm lotur af fullum krafti

Maðurinn sem hefur aðstoðað við að koma Gunnari í form lífs síns heitir Unnar Helgason og er styrktar og þrekþjálfari. Þeirra samstarf hefur augljóslega gengið frábærlega eins og sjá má á Gunnari.

Fjör á fjölmiðladegi UFC | Myndband

Margt fyndið og skemmtilegt gerðist á fjölmiðladegi UFC í gær þar sem átta bardagakappar komu til þess að láta ljós sitt skína.

Gunnar er orðinn að skrímsli

John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, trúir því varla hvað skjólstæðingur hans er kominn í gott líkamlegt form fyrir bardagann gegn Alex Oliveira í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×