Menning

Arnaldur notar bannorðið hjúkrunarkona

Benedikt Bóas skrifar
Arnaldur Indriðason er einn vinsælasti höfundur landsins en í nýjustu bók hans, Stúlkan hjá brúnni, má finna orðið hjúkrunarkona sem þykir ekki fallegt orð yfir hjúkrunarfræðinga sem setja sig mjög upp á móti notkun þess.
Arnaldur Indriðason er einn vinsælasti höfundur landsins en í nýjustu bók hans, Stúlkan hjá brúnni, má finna orðið hjúkrunarkona sem þykir ekki fallegt orð yfir hjúkrunarfræðinga sem setja sig mjög upp á móti notkun þess.
Nýjasta bók Arnaldar Indriðasonar, Stúlkan hjá brúnni, hefur að geyma bannorðið hjúkrunarkona. Bókin fjallar um Konráð, fyrrverandi lögreglumann, sem á að leita að barnabarni eldri hjóna, og er búin að vera við toppinn á bókasölulistum frá því hún kom út.

Lesendur Arnaldar eru tryggir en frá því að hann gaf út Syni duftsins fyrir 20 árum hefur ein bók komið út á hverju ári sem allar seljast eins og heitar lummur. Búist er við að 500 þúsundasta eintakið seljist fyrir þessi jól.

Bannorðið setti heitar umræður af stað eftir að það birtist í bók Birgittu Haukdal um heimsókn Láru til læknis. Þá gerðu hjúkrunarfræðingar og fleiri harðorðar athugasemdir við úrelta staðalímynd stéttarinnar í bókinni þar sem notað var orðið sem bannað er að segja. Birgitta lét breyta orðinu í endurprentun í hjúkrunarfræðing.

Orðið hjúkrunarkona í bók Arnaldar.
Í bók Birgittu birtist hjúkrunarfræðingur í kjól með kappa á höfðinu en rúm 40 ár eru síðan íslenskir hjúkrunarfræðingar hættu að sinna starfi sínu með slíkan höfuðbúnað.

Bækur Arnaldar eru myndalausar og því stendur orðið þarna aleitt og yfirgefið þegar Konráð fer á gjörgæsludeild til að hitta Lassa. „Fáir voru á ferli á sjúkraganginum. Einstaka sjúkraliði eða hjúkrunarkona fór hljóðlega um og veitti honum ekki nokkra athygli. Hann ætlaði að segjast vera fjölskylduvinur Lassa ef einhver innti hann eftir erindinu en til þess kom ekki,“ skrifar Arnaldur.

Ekki náðist í bókaforlag Arnaldar til að athuga hvort orðinu yrði breytt líkt og Birgitta gerði í endurprentun.


Tengdar fréttir

Segir vinnubrögð Birgittu óásættanleg

Herdís Sveinsdóttir, prófessor og deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, birti í dag skoðanapistil þar sem hún gagnrýndi vinnubrögð útgáfufyrirtækisins Forlagsins og söngkonunnar og rithöfundarins Birgittu Haukdal við útgáfu bókar Birgittu, Lára fer til læknis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×