Lífið

„Það er í tísku að vera með þetta svona allt í klessu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eiði Smára þótti rétturinn ekkert sérstaklega fallegur.
Eiði Smára þótti rétturinn ekkert sérstaklega fallegur.
Þriðja þáttaröðin af Ísskápastríðinu hóf göngu sína á miðvikudagskvöldið og í fyrsta þættinum voru vinirnir Sverrir Þór Sverrisson og Eiður Smári Guðjohnsen gestir í þættinum.

Eiður var með Gumma Ben í liði og Sveppi var með Evu Laufey í liði.

Eiður og Gummi ekki beint þekktir fyrir það að vera heimsklassakokkar en þeir stóðu sig með prýði.

Hér að neðan má sjá þegar liðin matreiddu eftirréttinn en Eiði fannst þeirra réttur ekki líta nægilega vel út.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×