Viðskipti innlent

Skúli átti í viðræðum við Indigo á sama tíma og hann samdi við Icelandair

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Skúli Mogensen segist ekki geta neitað því að vera mjög ánægður með að Icelandair Group hafi fallið frá kaupum á WOW air í ljósi áhuga Indigo Partners á að fjárfesta í félaginu.
Skúli Mogensen segist ekki geta neitað því að vera mjög ánægður með að Icelandair Group hafi fallið frá kaupum á WOW air í ljósi áhuga Indigo Partners á að fjárfesta í félaginu. Vísir/Friðrik Þór Halldórsson
Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air átti í viðræðum við bandaríska fjárfestingarfélagið Indigo Partners á sama tíma og hann var í viðræðum við Icelandair Group um kaup á WOW air og eftir að skrifað var undir kaupsamning. Hann segist hafa vonast til að Icelandair myndi falla frá samrunanum þegar áhugi Indigo Partners var ljós.

Ekki hefur verið upplýst hversu stóran hlut Indigo Partners kaupir í WOW air en samkomulagið er háð áreiðanleikakönnun.

Indigo Partners er staðsett í Phoenix í Bandaríkjunum en félagið sérhæfir sig í fjárfestingum í lággjaldaflugfélögum og er aðalfjárfestirinn í Tiger Airways í Singapúr og Spirit Airlines í Flórída. Þá er Indigo einn stærsti hluthafinn í ungverska lággjaldaflugfélaginu Wizz air.

„Við þekkjum þá ansi vel og höfum þekkt þá lengi og sum af þeirra flugfélögum. Þannig að þetta hefur verið í undirbúningi lengi en fór á mikið skrið undanfarnar vikur,“ segir Skúli um viðræðurnar við Indigo Partners.

Þannig að þetta var í fullum gangi á meðan viðræður við Icelandair Group stóðu yfir? „Já, eins og ég segi, við erum búin að þekkja þá lengi en boltarnir fóru að rúlla fyrir tiltölulega skömmu síðan.“

Vonaðir þú að Icelandair myndi falla frá kaupunum á WOW air þegar þú vissir af áhuga Indigo Partners? „Ja, það er náttúrulega þannig að ég get ekki neitað því að ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og tel Indigo vera frábæran partner fyrir okkur.“

Skúli fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra í ráðuneytinu klukkan tvö í dag til að ræða stöðu og horfur WOW air. Hann vildi ekki ræða við okkur eftir fundinn en veitti viðtal á sjötta tímanum.

Hvers vegna attir þú fund með samgönguráðherra? „Það er bara mjög eðlilegt að upplýsa ráðherra samgöngumála um stöðu mála og við áttum bara mjög gott spjall um það.“

Er rekstur WOW air tryggður næstu vikur og mánuði? „Já, við teljum þetta vera mjög gott skref í rétta átt og vinnum hörðum höndum að því að klára það sem þarf.“

Bjartsýnn með framhaldið

Ítrekað hefur verið fjallað um óvissu um horfur WOW air á síðustu mánuðum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi fylgst með málinu úr fjarlægð. „Eins og komið hefur fram í fréttum hafa orðið vendingar hvað varðar WOW air og það er kominn nýr erlendur aðili sem fyrirtækið á í viðræðum við og ég vonast auðvitað til að allt muni þetta enda farsællega,“ segir Katrín.

En hvað vill Skúli Mogensen segja við fólk sem að hefur áhyggjur af því að ferðast með félaginu vegna umræðu um óvissu um framtíðarhorfur þess undanfarnar vikur og mánuði? „Ég held að við höfum tekið núna risaskref í rétta átt. Vissulega erum við núna í miðri áreiðanleikakönnun, við þurfum að klára ákveðin skilyrði en það er verið að vinna mjög hratt í þeim efnum og ég er mjög bjartsýnn með framhaldið.“ 

Lengra viðtal við Skúla þar sem hann fer yfir samkomulagið við Indigo Partners, atburði síðustu vikna og rekstrarhorfur WOW air. 


Tengdar fréttir

Óþreyju gætir meðal leigusala WOW air

Mörg mál standa enn út af í viðræðum Icelandair og WOW air. Stjórnendur Ice­landair vilja ekki að flugmenn WOW air verði á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla í rekstri WOW air.

Skúli fundaði með samgönguráðherra

Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í samgönguráðuneytinu eftir hádegi í dag.

Bjartsýnn á að önnur flugfélög fylli í skarðið

Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segist bjartsýnn á að höggið á efnahagslífið við mögulegt brotthvarf félagsins yrði viðráðanlegt og að ferðaþjónustan og hagkerfið myndu rétta úr kútnum fyrr en seinna.

„Áhætta við kaupin var meiri en við gerðum ráð fyrir“

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir að stjórn og stjórnendur félagsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að áhætta við kaup Icelandair Group á WOW air hafi verið meiri en gert hafi verið ráð fyrir. Ákvörðun um að falla frá samruna var tekin eftir að niðurstöður úr áreiðanleikakönnun Deloitte lágu fyrir.

Samskip umsvifameiri en flesta grunar

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa, segir mikil sóknartækifæri með nýju leiðakerfi félagsins. Samskip ætli að auka hlutdeild í útflutningi á ferskum afurðum.

Bjartsýnn á að geta dregið uppsagnir til baka

Forstjóri Airport Associates er bjartsýnn á að geta dregið uppsagnir ríflega 200 starfsmanna til baka í ljósi frétta af aðkomu Indigo Partners að rekstri WOW air.

Einhugur um að hætta við kaupin á WOW air

Stjórnarformaður Icelandair segir einhug um að hætta við kaupin á WOW air hafa ríkt innan stjórnarinnar. Hvorki var komið á hreint hver stór hlutur Skúla í Iceland­air hefði orðið né hvort samkomulag næðist við skuldabréfaeigendur WOW air.

Vonar að allt fari vel hjá WOW

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ríkissstjórnin fylgist auðvitað vel með gangi mála hjá flugfélaginu WOW air.

Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð

Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð.

WOW air verður „ofurlággjaldaflugfélag“ ef Indigo fylgir sömu stefnu

Búast má við miklum breytingum á rekstri WOW air á næstunni ef Indigo Partners mun fylgja sömu stefnu gagnvart WOW air og fyrirtækið hefur fylgt gagnvart öðrum lággjaldaflugfélögum sem það hefur fjárfest í. Þetta segir forstjóri fraktflugfélagsins Bluebird Nordic sem hefur meira en 20 ára reynslu á flugmarkaði.

Fimmtán sagt upp hjá Wow Air

Svanhvít segir fyrst og fremst um að ræða starfsmenn fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli.

Mikilvægt að eyða óvissu því WOW air flytur fjóra af hverjum tíu farþegum

Airport Associates sem þjónustar WOW air sagði upp 237 starfsmönnum í dag en það er nær helmingur starfsfólks fyrirtækisins. Forstjórinn segir það varúðarráðstöfun. Hagfræðingar í greiningardeildum bankanna segja að það sé mikilvægt að eyða óvissu um framtíð WOW air sem fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×