Lífið

Birgitta sló öll vopn úr höndum moggabloggara

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Bloggarinn hafði gert athugasemdir við brúnkukrem Birgittu.
Bloggarinn hafði gert athugasemdir við brúnkukrem Birgittu. Fréttablaðið/Hanna
Söngkonan og barnabókahöfundurinn Birgitta Haukdal hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga eftir fréttaflutning af óánægju hjúkrunarfræðinga með orðaval í nýjustu barnabók hennar. Þar er hjúkrunarfræðingur kallaður hjúkrunarkona en Birgitta hefur sætt mikla gagnrýni vegna orðavalsisn.

Af því tilefni rifjar moggabloggarinn Jens Kristján Guðmundsson, eða Jens Guð, upp samskipti sín við Birgittu.

Jens Kristján Guðmundsson skrifar undir nafninu Jens guð.Fréttablaðið/Rósa
„Ég þekki ekki Birgittu. Hef aldrei talað við hana né hitt hana. Hins vegar varð mér á að blogga um hana skömmu fyrir jólin 2007, fyrir 11 árum. Hún kom fram í sjónvarpsþætti. Með vanþroskuðum galgopahætti reyndi ég að vera fyndinn á hennar kostnað; bullaði eitthvað um sjálfbrúnkukrem hennar,“ skrifar Jens.

„Tveimur dögum síðar barst mér í hendur jólakort frá henni. Þar afvopnaði hún mig til lífstíðar. Steinrotaði mig með óvæntum viðbrögðum. Síðan hef ég ekki og mun aldrei segja né skrifa neitt neikvætt um hana. Það er mikið varið í manneskju sem tæklar ókurteisi í sinn garð svona glæsilega.“

Í kortinu sem Birgitta sendi Jens stóð:

„Elsku Jens Guð (teikning af hjarta). Ég óska þér gleðilegra jóla og vona að þú hafir það yndislegt. Þín Birgitta H. P.s. Töfrakremið heitir Beautiful 4 ever (brosmerki)."

Ekki fylgir þó sögunni hvort Jens hafi farið út í búð og keypt töfrakrem Birgittu.


Tengdar fréttir

Segir vinnubrögð Birgittu óásættanleg

Herdís Sveinsdóttir, prófessor og deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands, birti í dag skoðanapistil þar sem hún gagnrýndi vinnubrögð útgáfufyrirtækisins Forlagsins og söngkonunnar og rithöfundarins Birgittu Haukdal við útgáfu bókar Birgittu, Lára fer til læknis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×