Lífið

Verndarvængur á sængurver

Benedikt Bóas skrifar
Arnmundur ofan á rúmfötunum góðu í Betra bak þar sem hægt er að fá sængur- og koddaverið.
Arnmundur ofan á rúmfötunum góðu í Betra bak þar sem hægt er að fá sængur- og koddaverið. Fréttablaðið/Eyþór
„Það stóð alltaf til að gera eitthvað með myndirnar hennar mömmu. Hún var vinur og í miklum samskiptum við fjölskylduna sem á Betra bak. Upphaflega byrjar spjallið þar. Þau höfðu gert svipaða hluti með Tolla á sínum tíma og eftir að ég sá það fannst mér það alveg kjörið að slá til,“ segir Arnmundur Backman, sonur Eddu Heiðrúnar Backman sem lést árið 2016.

Edda greindist með MND-sjúkdóminn og fann sköpunarkraftinum farveg með því að mála með munninum. Ein af hennar þekktustu myndum, Verndarvængur, er nú komin á sængurver sem fæst hjá Betra baki í Faxafeni. Arnmundur og systir hans Unnur Birna standa að verkefninu en upprunalega verkið hangir inni hjá Arnmundi.

„Myndin sjálf er ekki að fara þaðan. Þetta er sú mynd sem ber hennar listrænu einkenni hvað mest segja mér fróðari menn,“ segir hann og bætir við að hann hlakki til að hjúfra sig undir Verndarvængnum áður en hann sofnar. „Það er falleg hugsun. Nafnið er líka við hæfi – Verndarvængur. Það á svo vel við þetta verkefni.“

Arnmundur sást síðast á skjáum landsmanna í þáttaröðinni Venjulegt fólk sem sýnd var við góðan orðstír í Sjónvarpi Símans. Næst mun hann sjást í Ófærð og svo á sviði í Þjóðleikhúsinu í febrúar. Þar verður hann undir stjórn Benedikts Erlingssonar í sýningu Jóns Gnarrs, Súper. „Það er mikil tilhlökkun. Svo er ég sjálfur að skrifa handrit í frítíma mínum og fæ góð ráð frá góðum vinum,“ segir hann glaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×