Erlent

Leita aðstoðar Bandaríkjanna

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Benjamín Netanjahú er forsætisráðherra Ísraels. Ríkisstjórn hans ætlar að leita til yfirvalda í Bandaríkjunum vegna Airbnb.
Benjamín Netanjahú er forsætisráðherra Ísraels. Ríkisstjórn hans ætlar að leita til yfirvalda í Bandaríkjunum vegna Airbnb. Nordicphotos/AFP
Yfirvöld í Ísrael munu leita ráða hjá ríkisstjórn Bandaríkjanna eftir að Airbnb fjarlægði eignir á Vesturbakkanum sem skráðar voru til útleigu af síðu sinni. Þetta sagði Gilad Erdan, öryggis- og upplýsingamálaráðherra Ísraels.

„Við munum hafa samband við Bandaríkin þar sem 25 ríki þeirra hafa samþykkt lög um þvinganir gegn fyrirtækjum sem sniðganga Ísrael. Í þessu tilfelli er enginn munur á því um hvaða svæði Ísraels er að ræða,“ sagði Erdan og fullyrti að Vesturbakkinn, sem Ísraelar hafa hernumið, falli undir téð lög. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×