Fótbolti

Bendtner á leiðinni í grjótið

Hjörvar Ólafsson skrifar
Bendtner í leik gegn Valsmönnum síðasta sumar.
Bendtner í leik gegn Valsmönnum síðasta sumar. vísir/bára
Nicklas Bend­tner, samherji Matthíasar Vilhjálmssonar hjá Rosenborg, mun ekki áfrýja héraðsdómi Kaupmannahafnar sem dæmdi hann í 50 daga fang­elsi fyr­ir lík­ams­árás fyrr í þessum mánuði.

Danska blaðið BT grein­di frá þessu í frétt sinni í gær, en Bend­t­ner hlaut dóm sinn, fyrir að ráðast á leigu­bíl­stjóra í Kaup­manna­höfn í sept­em­ber, í þessum mánuði.

Leigubílstjórinn kjálkabrotnaði eftir árás danska framherjans sem sagðist hafa brugðist við í sjálfsvörn með þessum afleiðingum. Ekki var fallist á vörn hans fyrir héraðsdómi og Bendtner hefur ákveðið að una þeirri niðurstöðu og sitja dóminn af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×