Lífið

Óður til hins upprunalega á Hótel Sögu

Benedikt Bóas skrifar
Sigurður Helgason, yfirmatreiðslumaður á Hótel Sögu, stendur stoltur inni á nýja staðnum. Fréttablaðið/Ernir
Sigurður Helgason, yfirmatreiðslumaður á Hótel Sögu, stendur stoltur inni á nýja staðnum. Fréttablaðið/Ernir
„Við erum búin að vera með foropnun í nokkra daga en opnum formlega í dag. Það er mikil tilhlökkun, við iðum í skinninu og getum ekki beðið eftir að byrja,“ segir Sigurður Helgason, yfirmatreiðslumaður á Hótel Sögu, en þrátt fyrir opnun vantar tvo í eldhúsið. Yfirkokkurinn á veitingastaðnum Denis Grbic og eftirréttadrottning landsins, Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo, verða fjarverandi því þau eru að keppa á Heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg með kokkalandsliðinu.

Stólarnir á jarðhæðinni vekja athygli en hinn sérhannaði hægindastóll Hótel Sögu hefur verið endurgerður eftir upprunalegum teikningum Halldórs Jónssonar, arkitekts hússins. „Þeir voru smíðaðir fyrir Hótel Sögu þegar það var byggt 1962. Hann lærði í Danmörku og þetta er þessi klassíska skandinavíska hönnun. Hann var á sama tíma í skóla og Arne Jacobsen og stíllinn ber alveg þess merki. Í hönnunarferlinu var sú ákvörðun tekin að horfa til upprunans. Færa útlitið til þess tíma þegar húsið var byggt því það er svo tímalaus hönnun.“

Upphaf Bændahallarinnar og Hótel Sögu má rekja aftur til 1939 en framkvæmdir hófust 1956 og var húsið tekið í notkun 1962. „Hótelið var auðvitað glæsilegt þegar það var reist á sínum tíma og þess vegna var ákveðið að færa húsið aftur í það horf í heild sinni. Allt sem hefur verið gert að undanförnu hefur verið unnið út frá þeirri reglu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×