Menning

Selkórinn fagnar 50 árum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Selkórinn í haustblíðunni. Arna Ösp er í ljósri úlpu til vinstri og Haraldur með gleraugu í svartri úlpu fyrir miðri mynd.
Selkórinn í haustblíðunni. Arna Ösp er í ljósri úlpu til vinstri og Haraldur með gleraugu í svartri úlpu fyrir miðri mynd.
Það voru konur í kvenfélaginu Seltjörn sem stofnuðu Selkórinn fyrir hálfri öld en fljótlega fengu konurnar til liðs við sig nokkra karla. Selkórinn hefur dafnað vel, ferðast víða um heim og sungið á ýmsum stöðum innanlands, bæði einn og með öðrum. Hann hélt afmælistónleika í vor með léttum lögum eftir þekkta íslenska lagasmiði. Nú ræðst hann í hátíðatónleika í Seltjarnarneskirkju á laugardaginn klukkan 16, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.

Á efnisskránni er Missa in Tempore Belli eftir Joseph Haydn. Í messunni, sem einnig er oft nefnd Pákumessa, syngja, auk kórsins, fjórir einsöngvarar, þau Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran, Sesselja Kristjánsdóttir mezzosópran, Egill Árni Pálsson tenór og Ágúst Ólafsson bassi. Stjórnandi er Oliver Kentish.

Afmælistónleikarnir eru líka tileinkaðir 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Af því tilefni fékk Oliver skáldið Sigurð Ingólfsson til þess að semja ljóð og samdi tónverk við það. Verkið nefnist Mitt land og verður frumflutt á tónleikunum.

Meðal nýjustu félaga Selkórsins er Arna Ösp Magnúsardóttir sem syngur sópran. „Ég byrjaði bara í fyrravetur. Er búandi á Seltjarnarnesinu og það er gott að eiga stutt á æfingar á kvöldin, sérstaklega þegar börn eru á heimilinu,“ segir hún. „Selkórinn er líka svo góður, þar er reynt fólk innan um sem jafnvel hefur sungið með kórnum frá því á 8. áratug síðustu aldar.“

Einn af eldri kórfélögunum er Haraldur Þráinsson, hann syngur tenór. „Það eru 40 ár síðan ég söng fyrst með kórnum og hef verið stöðugt í honum frá áramótunum 1984-5. Er sá karl sem er búinn að vera lengst,“ segir Haraldur, sem er járniðnaðarmaður og búinn að vera í því starfi líka í 40 ár. Hann segir félagsskapinn í kórnum góðan. „Það er alltaf gaman hjá okkur og maður kemst alltaf í gott skap þegar maður fer á æfingar. Ef ég lendi í leiðinlegum störfum er ég búinn að ná að stjórna hugsunum mínum þannig að ég komist í söngskap, þá verður allt miklu skemmtilegra.“

Miða á tónleikana er hægt að fá hjá kórfélögum en líka við innganginn á tónleikadag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×