Körfubolti

Versti árangur Warriors í fimm ár | LeBron snéri aftur heim

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
LeBron þakkar fyrir sig eftir að myndbandið góða hafði verið spilað um hann í höllinni.
LeBron þakkar fyrir sig eftir að myndbandið góða hafði verið spilað um hann í höllinni. vísir/getty
Áhorfendur í Cleveland tóku vel á móti LeBron James í nótt en Golden State Warriors er í krísu og tapar öllum leikjum sínum.

LeBron James snéri í fyrsta skipti til Cleveland í nótt eftir að hafa gengið í raðir LA Lakers síðasta sumar. Það var staðið upp og klappað fyrir honum er hann mætti. Svo var spilað flott myndband um hann í fyrsta leikhléi. Fallega gert.

LeBron var aftur á móti ekkert allt of vinalegur við sína gömlu félaga. Hann skoraði 32 stig, tók 14 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í fjögurra stiga sigri sinna manna.

„Ég gaf þessu félagi allt sem ég átti þau ellefu ár sem ég spilaði fyrir það. Að koma til baka og fá svona fallegar móttökur skiptir mig miklu máli sem og fjölskyldu mína,“ sagði LeBron djúpt snortinn.





Á meðan LeBron brosti hringinn í Cleveland fékk Golden State Warriors á baukinn gegn Oklahoma City Thunder.

Það er eitthvað stórkostlega mikið að í herbúðum Warriors en liðið er nú búið að tapa fjórum leikjum í röð. Það gerðist síðast árið 2013.

Úrslit:

Charlotte-Indiana  127-109

Philadelphia-New Orleans  121-120

Atlanta-Toronto  108-124

Boston-NY Knicks  109-117

Cleveland-LA Lakers  105-109

Chicago-Phoenix  124-116

Houston-Detroit  126-124

Milwaukee-Portland  143-100

Minnesota-Denver  101-103

Dallas-Brooklyn  119-113

San Antonio-Memphis  103-104

Utah-Sacramento  110-119

Golden State-Oklahoma City  95-123

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×