Innlent

Bálför Kristins og Þorsteins fór fram í Katmandú í dag

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þorsteinn, hér til til vinstri og Kristinn, til hægri.
Þorsteinn, hér til til vinstri og Kristinn, til hægri. Mynd/Torfi Hjaltason
Yfirvöld í Nepal hafa staðfest að lík Kristins Rúnarssonar og Þorsteins Guðjónssonar, sem fórust í október 1988 við fjallgöngu á fjallinu Pumori í Nepal, séu fundin. Bálför þeirra fór jafnframt fram í Katmandú í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Kristins og Þorsteins.

Leifur Örn Svavarsson, frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, fór fyrir hópi innfæddra fjallamanna sem náði í líkamsleifar þeirra og komu þeim slíðastliðinn sunnudag til Katmandú.

Hafa lík þeirra Kristinn og Þorsteins nú verið afhent aðstandendum. Bálför þeirra fór fram í Katmandú í dag kl. 14.15 að íslenskum tíma. Áætlað er að aðstandendur komi með öskuker þeirra heim til Íslands um næstu helgi.

Aðstandendur ítreka þakkir til allra þeirra sem komið hafa að máli þessu og fyrir allan þann hlýhug sem þeim hefur verið sýndur.

Kristinn og Þorsteinn týndust á Pumori fyrir þrjátíu árum. Bandarískur fjallgöngumaður gekk fram á lík þeirra í byrjun nóvember og var í kjölfarið haldið í leiðangur til að koma líkamsleifunum til aðstandenda. Ekki hafði fengist staðfest frá yfirvöldum fyrr en nú að lík Kristins og Þorsteins væru fundin.


Tengdar fréttir

Líkamsleifar Þorsteins og Kristins komnar til byggða

Líkamsleifar þeirra Þorsteins Guðjónssonar og Kristins Rúnarssonar sem fórust í hlíðum fjallsins Pumo-Ri í Nepal haustið 1988 hafa verið fluttar úr fjallshlíðinni og til Katmandú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×