Enski boltinn

Mourinho montaði sig eftir leik en Scholes var ekki skemmt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Scholes og Rio Ferdinand sást hér horfa á leik Manchester United á Old Trafford.
Paul Scholes og Rio Ferdinand sást hér horfa á leik Manchester United á Old Trafford. Vísir/Getty
Manchester United tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær með 1-0 sigri á svissneska félaginu Young Boys á Old Trafford.

Marouane Fellaini var hetjan en hann skoraði eina mark leiksins í uppbótartímanum. Manchester United og Juventus eru bæði komin áfram en Young Boys og Valencia sitja eftir. United hefur 10 stig og markatöluna 6-2 eftir fimm leiki.

Jose Mourinho, knattspynustjóri Manchester United, montaði sig af því eftir leikinn að hann hefði fjórtán sinnum tekið þátt í Meistaradeildinni með sitt lið og komist upp úr riðlakeppninni í öll fjórtán skiptin.

Manchester United goðsögnin Paul Scholes verður seint kallaður aðdáandi Jose Mourinho eða þess leikstíls sem Portúgalinn lætur liðið spila. Það breyttist ekki í gær þrátt fyrir sigur og sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar eins og sjá má hér fyrir neðan.



 

„Mér fannst þeir vera skelfilegir í þessum leik, þeir voru hræðilegir og þá sérstaklega í síðari hálfleiknum,“ sagði Paul Scholes.

„Ef þeir hefðu verið að spila á móti liði sem gæti eitthvað þá hefðu þeir tapað þessum leik,“ sagði Scholes.

„Þetta minnti mig á Sevilla leikinn í fyrra og það vantaði bara gæði allstaðar á vellinum,“ sagði Scholes.

Paul Scholes lék með Manchester United allan sinn feril, fyrst frá 1993 til 2011 og svo aftur tímabilið 2012-13. Hann spilaði alls 718 leiki fyrir félagið og vann 25 titla þar af Englandsmeistaratitilinn ellefu sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×