Bíó og sjónvarp

Stall­one dregur fram kalda­stríðs­hanskana

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Creed mætir Drago á ný í hringnum og sem fyrr er sá rússneski tröll en sá stutti á harma að hefna.
Creed mætir Drago á ný í hringnum og sem fyrr er sá rússneski tröll en sá stutti á harma að hefna.
Fjörutíu og tvö ár eru liðin síðan Sylvester Stallone lagði drög að heimsyfirráðum sínum með þeirri prýðisgóðu mynd Rocky. Myndin var ansi hrá og raunsæisleg saga ungs og heldur treggáfaðs handrukkara sem vann í sláturhúsi þar sem hann lumbraði á kjötskrokkum og lét sig dreyma um glæsta sigra sem hnefaleikari.

Tækifærið kom þegar hann fékk óvænt að skora á ríkjandi heimsmeistara, Apollo Creed, og standa uppi í hárinu á honum í allnokkrar lotur. Myndin sló í gegn og Stallone hélt áfram að rekja sögu Rocky í Rocky II 1979. Sú mynd var í svipuðum stíl en með Rocky III skipti Stall­one um gír og stráði 80s-glimmeri og glassúr yfir Rocky í sannkallaðri glansmynd.

Glamúr Rocky

Í Rocky III missti Rocky þjálfarann sinn, Mickey, sem sá bráðskemmtilegi Burgess Meredith lék með tilþrifum. Ráðvilltur og niðurbrotinn vissi Rocky vart í hvorn fótinn hann átti að stíga fyrr en hans forni fjandi, Apollo Creed, gaf sig fram og bauðst til þess að þjálfa hann og koma aftur á lappirnar.

Glamúrsýningin hélt áfram í Rocky 4 1985 en þá var Stallone kominn í mikinn kaldastríðsham og byrjaður að djöflast með vélbyssuna sem Rambó í hinum sögulega vinsæla myndabálkinum sínum. Þetta sama ár skrapp Rambó einmitt aðeins til Víetnam, sallaði niður vonda Sovétmenn og kláraði eiginlega einn síns liðs stríðið sem hann hafði tapað með félögum sínum í bandaríska hernum á árum áður.

Stallone lét stórveldin einnig mætast í Rocky 4 þar sem sovéska hnefaleikatröllið Ivan Drago tók sig til og einfaldlega drap Apollo, vin Rockys, í hringnum með einu fjallþungu rothöggi.

Rocky gat illa sætt sig við þetta og ákvað að leita hefnda í hringnum og skora Drago á hólm. Á meðan Drago æfir sín þungu högg í hátækniþjálfunarbúðum leitar Rocky hins vegar upprunans og æfir einn af kappi í afskekktum bjálkakofa. Og ekki þarf að spyrja að leikslokum þar sem illmenni fá alltaf makleg málagjöld í Stallone-myndum.

Kalda stríðið komið í hringinn. Rocky mætir höggþunga Sovéttröllinu.
Eftir sex Rocky-myndir skaut sú hugmynd upp kollinum að halda áfram að spinna söguna en nú með áherslu á son Apollos, Adonis Creed, sem vitaskuld nýtur leiðsagnar og þjálfunar gömlu og lúnu goðsagnarinnar Rocky Balboa.

Þetta reyndist alveg bráðsnjallt og Creed frá 2015 er sallafín boxmynd, vandlega og hárrétt hrærður tilfinningagrautur sem fáir kunna betur að malla en einmitt Stallone.

Michael B. Jordan skilaði Creed yngri með miklum glæsibrag og Stallone stóð vitanlega fyrir sínu sem Rocky. Jordan er síðan í millitíðinni orðinn stórstjarna, sló algerlega í gegn sem illmennið Killmonger í Marvel-snilldinni Black Panther og hefur verið ausinn lofi fyrir Creed 2.

Stallone er með puttana í handritinu að þessu sinni og trommar hér upp með það snilldarbragð að leiða þá Ivan Drago og Rocky saman á nýjan leik. Þeir standa þó utan hringsins núna en Rocky að baki Adonis og Ivan að baki sonar síns, Viktors, sem hann þjálfar.

Ekki þarf að spyrja að dramatíkinni þegar sonur mannsins sem Ivan drap í hringnum mætir syni banamannsins með Rocky á kantinum. Dolph Lundgren endurtekur leikinn sem Ivan en hann hefur látið hafa eftir sér að hann hefði aldrei tekið það í mál að leika Drago aftur ef hann hefði enn átt að vera einhliða skúrkur.

Ivan er sjálfsagt enn óttalegur skítalabbi en Lundgren er sáttur þar sem persónunni var gefin dýpt og það eru víst einhverjar sálfræðilegar ástæður fyrir því að sovéski dauðrotarinn er eins og hann er. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×