Innlent

Berg­þór biðst af­sökunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bergþór kannast ekki við að hafa notað orðfæri áður á borð við það sem DV og Stundin hafi eftir honum. Inga Sæland svaraði ekki fyrirspurnum fréttastofu í kvöld.
Bergþór kannast ekki við að hafa notað orðfæri áður á borð við það sem DV og Stundin hafi eftir honum. Inga Sæland svaraði ekki fyrirspurnum fréttastofu í kvöld. Vísir

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, segir að svo virðist sem hann hafi notað orðfæri honum framandi á hótelbar í liðinni viku. Stundin greindi frá því í kvöld að Bergþór hefði kallað Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, „húrrandi klikkaða kuntu“.

Bergþór segir í færslu á Facebook hafa rætt við Ingu í kvöld og beðið hana afsökunar á framgöngu sinni. 

Bergþór sat að sumbli á hótelbar í miðborginni þann 20. nóvember ásamt kollegum úr Miðflokki og Flokki fólksins. Á upptökum sem bárust DV og Stundinni í formi nafnleysis hvetja þingmenn Miðflokksins Karl Gauta Hjaltason og Ólaf Ísleifsson, þingmenn Flokks fólksins, til að skipta um lið.

En þetta snýst allt um, og ég held við séum öll í þessum slag til að láta gott af okkur leiða, og það eru miklu meiri líkur til þess að það gerist undir merkjum Miðflokksins heldur en Flokks fólksins af því að þið eruð með þessa húrrandi klikkuðu kuntu sem formann Flokks fólksins, sem þið ráðið ekkert við. Þið ráðið ekkert við hana. Segið mér ef ég hef rangt fyrir mér. Ég mundi ekki ráða við hana, Sigmundur mundi ekki. Hún er fokking tryllt. Komið til okkar.“

Gunnar Bragi Sveinsson er þingflokksformaður Miðflokksins.Vísir/Hanna

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, var einn þeirra sex þingmanna sem ræddu málin umrætt kvöld. Hafa orð hans vakið mikla athygli miðað við fyrri ummæli um að breyta þurfi orðræðu karla í bakherbergjum.

Hann tjáði DV í kvöld að öll umræða um að fá þingmenn yfir í aðra flokka væri á léttum nótum. Það væri oft talað á þessum nótum og væri grín.

Bergþór segir að sér hafi orðið hressilega á í messunni umrætt kvöld og notað munnsöfnuð í garð Ingu sem hefði ekkert sér til sakar unnið að verðskulda það.

„Þar virðist ég hafa notað orðfæri sem er mér framandi og ég veit ekki til að ég hafi áður notað.“

Hann lýsir yfir ánægju með samstarfið við Flokk fólksins.

„Flest þekkjum við að hafa í lokuðu rými talað óvarlega, og jafnvel af ósanngirni um annað fólk, þá sérstaklega þegar öl er haft um hönd, en það breytir því ekki að svona á maður ekki að tala um fólk.“

Inga Sæland svaraði ekki fyrirspurnum fréttastofu í kvöld en tjáði DV að Miðflokkurinn gæti étið það sem úti frysi.

Uppfært klukkan 08:09:

Karl Gauti Hjaltason hefur sent fjölmiðlum yfirlýsingu vegna orða sinna:

Ég harma um­mæli sem ég lét falla á veit­ingastað fyr­ir stuttu síðan og hafa birst í nokkr­um fjöl­miðlum. Af því til­efni vil ég taka fram að ég er ekki á för­um úr Flokki fólks­ins, styð stefnu flokks­ins og ber traust til for­manns hans, Ingu Sæ­land. Við höf­um unnið að ein­urð fyr­ir kjós­end­ur okk­ar og lagt fram mörg góð mál sem við hét­um því að vinna að.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×