Viðskipti innlent

„Við verðum bara að ganga út frá því að hann sé að segja satt“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Skúli Mogensen, eigandi WOW air, mætti til fundar með starfsmönnum sínum í höfuðstöðvum félagsins í Borgartúni í morgun.
Skúli Mogensen, eigandi WOW air, mætti til fundar með starfsmönnum sínum í höfuðstöðvum félagsins í Borgartúni í morgun. Vísir/vilhelm
Það er ekki beint hægt að segja að tíðindi morgunsins, að fallið hafi verið frá kaupum Icelandair á WOW air, hafi komið á óvart. Frá upphafi var ljóst að um erfitt ferli væri að ræða. Eigandi WOW segist nú eiga í viðræðum við aðra mögulega kaupendur en ekki verður séð að hið erfiða kaupferli, sem strandaði í morgun, verði neitt auðveldara þó að aðrir kaupendur séu komnir inn í myndina.

Óvissa. Þannig metur Sveinn Þórarinsson, greinandi hjá Landsbankanum, stöðuna eftir að ekkert varð af samruna íslensku flugfélaganna. Þar með er þó ekki sagt að tíðindin hafi komið flatt upp á fólk. Fréttir síðustu daga hafa gefið glögglega til kynna að um gríðarlega flókin kaup væri að ræða, margir boltar voru á lofti og mörg púsl sem hefðu þurft að falla á réttan stað.

„Eins og sagt er, það gat brugðið til beggja vona.“

Þrátt fyrir að vitað væri að þessi staða gæti komið upp, að fallið yrði frá kaupunum, er óhætt að segja að að hún sé óþægileg. Fátt sé í hendi á þessari stundu og óvissan mikil um framtíð WOW, þessa stóra leikmanns í íslenskri ferðaþjónustu. Sést það til að mynda vel á viðbrögðum markaðarins í morgun, úrvalsvísitalan hefur fallið nokkuð skarpt og rautt á öllum tölum.

Sjá einnig: Skúli útilokar ekki að segja þurfi upp starfsfólki

Sveinn segir þetta til marks um að svör vanti frá WOW um stöðu félagsins. „Það þurfa að vera skýrari plön með WOW. Eru þau að fara að sækja um greiðslustöðvun eða ekki?“

Sveinn Þórarinsson, greinandi í hagfræðideild Landsbankans.
Það er þó ekki að skilja á Skúla Mogensen, eiganda WOW, að það sé næsta skref. Í tölvupósti til starfsmanna í morgun sagðist hann vonast til að geta flutt þeim góðar fregnir á næstunni. Hann hefur áður sagst eiga í viðræðum við aðra kaupendur og ekki verður annað skilið af pósti morgunsins en að hann telji að draga muni til tíðinda á þeim vettvangi fyrr en síðar.

Sveinn vill ekkert fullyrða um þær yfirlýsingar, um þær ríkji óvissa eins og svo margt annað í tengslum við WOW þessa stundina. Hann segir þó að almennt þyki fólki í kringum sig þessar yfirlýsingar Skúla, um áhuga annarra kaupenda, ekki mjög trúverðugar.

„En það er auðvitað erfitt að rengja Skúla á opinberum vettvangi. Við verðum bara að ganga út frá því að hann sé að segja satt.“

Svör til að róa

Sveinn bendir jafnframt á að þó svo að Skúli sé kominn með aðra kaupendur að borðinu sé ekki þar með sagt að þeir muni sjálfkrafa stíga inn og bjarga flugfélaginu. Kaup á WOW yrðu eftir sem áður flókin, þó svo að annað félag en Icelandair ætti í hlut.

„Það yrði alveg jafnmikil þörf á því að bæta rekstur WOW og annað slíkt. Þá er bara spurningin: Er eitthvað annað félag, kaupandi eða hluthafi til í það? Ég persónulega sé það ekki gerast.“

Eins og má lesa af viðbrögðum Sveins liggur þó fátt ljóst fyrir á þessari stundu. Óvissan sé óþægileg og að það þurfi að fá afgerandi svör frá Skúla á næstunni til að róa markaðinn.

„Það væri þægilegra að vita meira um starfshæfni WOW. Óvissan er mjög óþægileg.“


Tengdar fréttir

Skúli segist reikna með gleðifréttum í mjög náinni framtíð

Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×