Sport

Eiginmaðurinn gekk í skrokk á henni en hún ætlar samt í búrið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rachael Ostovich.
Rachael Ostovich. vísir/getty
UFC-bardagakonan Rachael Ostovich ætlar að berjast við Paige VanZant í janúar þó svo hún hafi verið lögð inn á spítala eftir að eiginmaður hennar barði hana illa.

Eiginmaðurinn, Arnold Berdon, sem einnig er MMA-bardagakappi, var upprunalega ákærður fyrir tilraun til manndráps. Þeirri kæru hefur nú verið breytt í líkamsárás.

Það stórsá á Ostovich sem þurfti að leggjast inn á sjúkrahús til þess að fá bót meina sinna. Bardaganum var aflýst en nú er hann kominn aftur á dagskrá. Ostovich vildi aldrei aflýsa bardaganum.

VanZant fagnaði því að bardaginn væri aftur kominn á dagskrá og peppaði einnig komandi andstæðing sinn.





Ostovich fékk nálgunarbann á eiginmanninn sem má ekki koma nálægt henni eða dóttur þeirra til 19. maí.

Málið gegn Berdon verður tekið fyrir í Honolulu þann 18. desember næstkomandi en bardagi Ostovich og VanZant fer fram þann 19. janúar.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×