Viðskipti innlent

Toyota innkallar 761 bifreið á Íslandi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fjölmargar Aygo-bifreiðar eru í umferð á Íslandi.
Fjölmargar Aygo-bifreiðar eru í umferð á Íslandi. Wikipedia commons
Toyota á Íslandi mun þurfa að innkalla Toyota Aygo bifreiðar af árgerðunum 2005 til 2014. Alls er um að ræða 761 bifreið. Á vef Neytendastofu er ástæða innköllunarinnar sögð vera að rúða við afturhlera geti losnað að hluta vegna „ófullnægjandi límingar.“

Innköllunin er sögð felast í þvi að umrædd rúða er athuguð og lagfærð, ef þurfa þykir. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

„Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa,“ segir á vef stofnunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×