Formúla 1

Uppgjör: Besta tímabil Hamilton frá upphafi

Bragi Þórðarson skrifar
Hamilton er besti ökuþór þessarar kynslóðar
Hamilton er besti ökuþór þessarar kynslóðar vísir/getty
Lewis Hamilton endaði sem öruggur heimsmeistari í Formúlu 1 þetta árið, forskot hans á Sebastian Vettel endaði í 88 stigum.

Þessir tveir ökumenn komu inn í tímabilið báðir með fjóra heimsmeistaratitla. Því var svo sannarlega um að ræða baráttu um að verða besti ökumaður þessarar kynslóðar.

Tímabilið var langt frá því að vera auðvelt fyrir Hamilton og Mercedes því það voru Vettel og Ferrari sem byrjuðu betur.

Vettel kom fyrstur í mark á undan Hamilton í fyrstu keppninni í Ástralíu. Í byrjun tímabils leit út fyrir að Ferrari hafi gert heimalærdóminn betur og voru rauðu bílarnir þeir hröðustu á brautinni.

Eftir breska kappaksturinn hafði Sebastian 8 stiga forskot á Lewis. En segja má að í Þýskalands kappakstrinum hefðu lukkudísirnar yfirgefið Vettel.

Þjóðverjinn var ekki nógu stöðugur á fæti á tímabilinu og föllin of mörgvísir/getty
Mistökin sem kostuðu Vettel titilinn

Þjóðverjinn var með tæplega 10 sekúndna forustu þegar aðeins 15 hringir voru eftir af heimakeppni hans í júlí. Það var byrjað að rigna og Þjóðverjinn missti stjórn á Ferrari bíl sínum á sleipri brautinni.

Fyrir vikið varð Vettel frá að hverfa á meðan Hamilton keyrði sig upp í fyrsta sætið þrátt fyrir að hafa byrjað kappaksturinn fjórtándi.

Eftir atvikið á Hockenheim brautinni virtist eitthvað hafa hrunið andlega hjá Vettel. Þjóðverjinn vann aðeins eina keppni eftir það og Hamilton náði að tryggja sér titilinn með tvær keppnir eftir.

Hamilton kom, sá og sigraði í Singapúrvísir/getty
Frábært tímabil hjá Hamilton

Það voru þó ekki bara mistök Vettel og Ferrari sem tryggðu Hamilton og Mercedes titlana. „Þetta er búið að vera besta tímabil mitt til þessa,“ sagði Bretinn í viðtali við BBC eftir mexíkóska kappaksturinn.

Lewis var mun stöðugari en Sebastian í sumar, auk þess var það Mercedes sem sjaldnar gerði taktísk mistök.

Tími Hamilton í tímatökunum í Singapúr var eitt af mörgum atvikum sem sönnuðu að Lewis er verðugur fimmfaldur meistari.

Mercedes bíllinn hefur aldrei staðið sig vel á Singapúr brautinni og stefndi allt í öruggan sigur Ferrari eða Red Bull.

Þá gerði Lewis sér lítið fyrir og náði hreint út sagt mögnuðum árangri í tímatökunum og ræsti því fyrstur. Hamilton vann kappaksturinn og setti síðasta naglan í líkkistu Vettel.

Tekur lærisveinninn fram úr þeim besta?vísir/getty
Hamilton ekki á besta bílnum en í besta liðinu

Augljóst var í byrjun tímabils að Ferrari bílarnir voru hraðari en bílar Mercedes. Þýski bílaframleiðandinn hefur verið allsráðandi síðastliðin ár og þurfti liðið því í fyrsta skiptið að vinna virkilega fyrir titlinum.

Mercedes liðið gerði það svo sannarlega. Ofan á að þróa bílinn jafnt og þétt í gegnum tímabilið var liðið yfirleitt með Ferrari í vasanum þegar kom að taktík bæði í keppnum og tímatökum.

Þegar pressan verður meiri virðist liðið einhvernveginn finna annan gír. Því bendir allt til þess að Mercedes haldi áfram að vera í toppslagnum næstu árin.

Það gefur Lewis Hamilton tækifæri á að ná metum Michael Schumacher og verða því besti ökuþór heims. Hamilton vantar 18 sigra og tvo titla til að jafna Schumacher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×