Innlent

Vandi sem grefur undan öryggi fólks á vinnumarkaði

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins Eflingar
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins Eflingar Vísir/Stöð 2
Efling stendur fyrir fundi um erfiðleika sem verktakar og lausavinnufólk mætir í tengihagkerfinu. Framkvæmdastjóri Eflingar segir að óstöðugleiki slíks hóps sé vaxandi vandi sem nauðsynlegt er að taka á, með tilliti til samninga lausavinnufólks.

Miklar breytingar hafa orðið á atvinnuháttum víða, sérstaklega hvað varðar stöðugleika vinnu en margt fólk býr við tímabundnar lausráðningar. Slíkt vinnuafl fellur oft utan stéttarfélaga þar sem ekki er um launþega að ræða í hefðbundnum skilningi.

„Ég held að þetta sé áskorun sem verkalýðsfélög þurfa að fara að huga meira að því þetta hefur færst gríðarlega í vöxt á síðustu árum og áratugum, svokölluð íhlaupavinna af þessu tagi. Við sjáum þetta í ýmsum geirum t.d. í byggingariðnaðinum þar sem að menn eru verktakar hver hjá öðrum og er þá jafnvel um að ræða svokallaða „gerviverktöku.“ Þetta er fyrirkomulag sem getur komið niður á réttindum og lífsgæðum verkafólks þannig að við viljum vera vakandi fyrir þessu og læra af því sem vel hefur verið gert í þessum málum erlendis,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.

Hann segir að um vaxandi vanda sé að ræða sem komi atvinnurekendum vel en starfsfólki illa.

„Þetta getur hentað atvinnurekendum betur, að borga launafólki verktakalaun án þess að greiða þeim að fullu launatengdan kostnað sem fellur á launamanninn. Þetta er oft gert á þeim forsendum að slíkt fyrirkomulag sé sveigjanlegt, heppilegt og hentugt en á endanum er þetta eitthvað sem grefur undan stöðugleika og öryggi fólks á vinnumarkaði því miður,“ segir Viðar.

Fundurinn hefst klukkan 14.30 í Gerðubergi og er hann opinn öllum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×