Fótbolti

Dortmund sigruðu í risaslagnum gegn Bayern í markaleik

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Paco Alcacer reyndist hetja Dortmund í kvöld
Paco Alcacer reyndist hetja Dortmund í kvöld Vísir/Getty
Dortmund sigraði Bayern Munchen í uppgjöri tveggja bestu liða Þýskalands í kvöld.



Það var risaslagur er toppliðin Dortmund og Bayern Munchen áttust við í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni.



Dortmun hafði fyrir leikinn fjögurra stiga forystu á erkifjendur sína í Bayern.



Það byrjaði vel fyrir gestina í Bayern þegar markahrókurinn Robert Lewandowski kom meisturunum yfir á 26. mínútu.



Marco Reus jafnaði leikinn fyrir toppliðið í upphafi seinni hálfleiks en skömmu síðar kom Lewandowksi Bayern aftur yfir.



Það var hins vegar Reus sem jafnaði aftur fyrir Dortmund á 67. mínútu.



Paco Alcacer skoraði svo sigurmark Dortmund á 73. mínútu og tryggði þeim risastóran sigur á Bayern.



Dortmund er nú með sjö stiga forystu á Bayern sem datt niður í þriðja sæti deildarinnar eftir leiki dagsins. Borussia Mönchengladbach er nú í öðru sæti, fjórum stigum á eftir Dortmund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×