Handbolti

Fjögurra marka tap hjá Valskonum í Hollandi

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Lovísa var markahæst Valskvenna í Hollandi
Lovísa var markahæst Valskvenna í Hollandi vísir/daníel
Valur tapaði gegn hollenska félaginu H.V. Quintus í Áskorendabikar kvenna í kvöld, 24-20.



Þetta var fyrri leikur liðanna í þriðju umferð Áskorendabikarsins en leikið var í Hollandi.



Quintus byrjuðu af krafti og leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 13-8.



Quintus hélt forystu sinni svo út leikinn en Valur náði lítið að ógna Hollendingunum.



Lokatölur leiksins voru 24-20 fyrir Quintus.



Seinni leikurinn fer fram á morgun, einnig í Hollandi og verður á brattan að sækja fyrir Valskonur.



Lovísa Thompson var markahæst Valskvenna með fimm mörk en Sandra Erlingsdóttir skoraði fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×