Körfubolti

Körfuboltakvöld: Ingi Þór fékk boltann í hausinn

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Ingi Þór fékk boltann beint í hausinn
Ingi Þór fékk boltann beint í hausinn vísir/anton
Það er stutt í skemmtunina í Körfuboltakvöldi en í síðasta þætti var sýnt skemmtilegt atvik sem gerðist fyrir leik Njarðvíkur og KR.



Þá var Ingi Þór Steinþórsson í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leikinn og varð hann fyrir því óláni að fá boltann beint í hausinn eftir skot frá ungum dreng.



„Er þetta ekki til á vídeói?“ spyr Ingi Þór eftir að boltinn lenti í hausnum á honum, og það er svo sannarlega rétt hjá honum.



Atvikið sjálft var skemmtilegt og fyndið. En viðbrögð drengsins sem skaut boltanum sem endaði í höfðinu á Inga voru einnig kostuleg.



Sjáðu þetta skemmtilega atvik hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×