Golf

Kuchar stóð uppi sem sigurvegar í Mexíkó

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Kuchar með verðlaunagripinn
Kuchar með verðlaunagripinn Vísir/Getty
Matt Kuchar stóð upp sem sigurvegari á Mayakoba mótinu í Mexíkó en mótið er hluti af PGA mótaröðinni.



Kuchar lék á tveimur höggum undir pari en fyrir hringinn hafði hann fjögurra högga forystu.



Nýsjálendingurinn Danny Lee lét Kuchar hafa fyrir hlutunum en hann lék á sex höggum undir pari í og varð aðeins einu höggi á eftir Kuchar.



Sigur Kuchar var hans áttundi á PGA mótaröðinni en hans síðasti sigur kom árið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×