Viðskipti innlent

Þýskur netbanki til Íslands fyrir áramót

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bankinn rekur engin útibú en leggur þess í stað áherslu á snjallsímaforrit.
Bankinn rekur engin útibú en leggur þess í stað áherslu á snjallsímaforrit. n26
Innan nokkurra vikna mun þýski netbankinn N26 hefja starfsemi á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu, sem DV sagði fyrst frá, að bankinn muni bjóða Íslendingum upp á tvær gerðir reikninga, sem báðir eru í evrum.

Annars verður um að ræða hefðbundinn reikning sem ekkert kostar og hins vegar fyrirtækjareikning, sem veitir viðskiptavinum meðal annars 0,1% endurgreiðslu af öllum færslum. Báðum reikningunum fylgir ókeypis debitkort og munu viðskiptavinir bankans geta „skipulagt, tekið út og varið peningunum sínum, auk þess sem þeir geta stýrt fjármálum sínum algjörlega með símanum,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

Þar segir jafnframt að reikningar bankans séu sérstaklega hugsaðir fyrir fólk sem millifærir reglulega peninga innan evrusvæðisins og vill njóta „samkeppnishæfra kjara“ við greiðslukortanotkun sína erlendis.

Bankinn rekur engin útibú og hefur sótt hratt fram í Evrópu á undanförnum mánuðum. Fyrir helgi hóf hann starfsemi í fjórum löndum sem ekki reiða sig á evru; í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Póllandi. Að þeirri útrás lokinni er bankinn með starfsemi í 22 Evrópuríkjum og segist bankinn jafnframt hafa í hyggju að hefja starfsemi í Íslandi og Lichtenstein fyrir áramót. 

Í nýliðnum októbermánuði voru rúmlega 1,5 milljónir Evrópubúa í viðskiptum við N26 og segir í tilkynningunni að viðskiptavinir bankans hafi látið rúmlega milljarð evra flæða um bankareikninga sína þann mánuðinn. Talsmaður fyrirtækisins segir að um 10 þúsund manns séu nú á biðlista eftir þvi að geta hafið viðskipti við N26.

Mikil gróska er í fjártækniheiminum þessi misserin og segja sérfræðingar að innan næstu 5 til 10 ára geti orðið grundvallarbreyting á því hvernig fólk umgengst fjármálin sín - eins og Vísir fjallaði um á dögunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×