Innlent

Banaslys í Borgarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn var úrskurðaður látinn í gærkvöldi.
Maðurinn var úrskurðaður látinn í gærkvöldi. Vísir
Ökumaður bifreiðar sem lenti í alvarlegu umferðarslysi var úrskurðaður látinn í gærkvöldi skömmu eftir komu á slysadeild. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Tildrög slyssins og orsakir liggja ekki fyrir og er áfram unnið að rannsókn málsins.

Slysið varð á Borgarfjarðarbraut rétt norðan við Flókadalsá á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Bíllinn, sem ökumaðurinn var einn í, fór nokkrar veltur. Var maðurinn fluttur alvarlega slasaður á slysadeild í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Þá var slökkvilið Borgarbyggðar kallað út ásamt lögreglu en beita þurfti klippum til að ná manninum út úr bílnum.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×