Erlent

Annar sonurinn var heima þegar Janne Jemtland var skotin

Atli Ísleifsson skrifar
Málið vakti gríðarlega athygli í Noregi í kringum síðustu áramót, en mikil leit stóð yfir að Janne eftir að eiginmaðurinn Svein, 47 ára, hafði sjálfur tilkynnt um hvarf hennar.
Málið vakti gríðarlega athygli í Noregi í kringum síðustu áramót, en mikil leit stóð yfir að Janne eftir að eiginmaðurinn Svein, 47 ára, hafði sjálfur tilkynnt um hvarf hennar. NORSKA LÖGREGLAN/GETTY
Norðmaðurinn Svein Jemtland neitaði sök þegar aðalmeðferð hófst í máli hans í Héraðsdómi Heiðmerkur í Hamar í morgun. Hann er ákærður fyrir morð á eiginkonu sinni, Janne Jemtland, í lok síðasta árs.

Norskir fjölmiðlar segja að saksóknari hafi hafið mál sitt á því að segja að annar sonur þeirra hafi heyrt hávaða fyrir utan húsið, kvöldið sem Janne lét lífið. „Eldri sonurinn var einn heima þegar foreldrarnir voru í veislunni,“ sagði saksóknarinn Iris Storås. Hún segir það óumdeilt að sonurinn hafi heyrt hávaða um klukkan 2:15, um hálftíma eftir að foreldrarnir sneru heim úr veislunni. Þegar hann heyrði hávaðann hafi hann sent móður sinni smáskilaboð: „Mamma?!“.

Fannst á botni árinnar Glomma

Málið vakti gríðarlega athygli í Noregi í kringum síðustu áramót, en mikil leit stóð yfir að Janne eftir að eiginmaðurinn Svein, 47 ára, hafði sjálfur tilkynnt um hvarf hennar. Þau höfðu verið í veislu í félagsheimili í Velrom, í um átta kílómetra fjarlægð frá heimili sínu umrætt kvöld og tóku leigubíl heim um skömmu fyrir klukkan tvö eftir miðnætti.

Lögregla vill meina að Svein hafi skotið eiginkonu sína stuttu eftir að þau sneru heim úr veislunni. Hann á svo að hafa varpað Janne út í ána Glomma þar sem líkið fannst 13. janúar. Líkið fannst á botni árinnar, en bílarafhlöður höfðu verið bundnar við líkið.



Segir Janne hafa orðið fyrir voðaskoti

Í frétt NRK segir að Svein hafi mætt í bláum jakka og gallabuxum þegar hann mætti í dómsal í morgun. Þá hafi hann látið vaxa sér sítt skegg. Svein hefur alla tíð neitað að hafa banað Janne, og segir að hún hafi orðið fyrir voðaskoti. Krufning leiddi í ljós að Janne hafi látist af völdum drukknunar, en að hún hafi áður verið skotin í höfuðið.

Báðir synir þeirra Svein og Janne munu bera vitni við aðalmeðferð málsins. Svein Jemtland á yfir höfði sér lífstíðardóm, 21 árs fangelsi, verði hann fundinn sekur.

„Spurningin um hvort að skotið hafi verið óhapp eða hvort að ákærði hafi skotið konu sína... Það er aðalspurningin sem rétturinn þarf að taka afstöðu til,“ sagði Storås í morgun.



Starfaði sem hermaður

Byssan sem var notuð var af gerðinni Makarov. Saksóknari sagði í morgun að tilkynnt hafi verið um stuld á byssunni í Tékklandi árið 2007. Byssan fannst í skóglendi í Vangsåsa í Hamar í maí.

Svein Jemtland var starfandi í frönsku útlendingahersveitinni í um tvo áratugi, meðal annars á Balkanskaga á tíunda áratugnum. Árið 1991 var hann dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Hann og Janne gengu í hjónaband árið 2006.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×