Innlent

Sæbraut opnuð á ný

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sæbraut hefur verið lokað í vesturátt.
Sæbraut hefur verið lokað í vesturátt. Vísir/Vilhelm
Uppfært

Búið er að opna Sæbraut á ný eftir slysið. Upprunalegu fréttin af málinu má sjá hér að neðan.



Sæbraut hefur verið lokað í vesturátt frá Kringlumýrarbraut vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð um klukkan 11:30 í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðsins var ekið á gangandi vegfaranda við gatnamótin. Hann var fluttur á slysadeild í Fossvogi en ekki er nánar vitað um ástand hans.

Unnið er að rannsókn á vettvangi en ekki liggja fyrir upplýsingar um hversu lengi lokunin mun vara. 

Hér að neðan má sjá á korti hvaða gatnamót um ræðir.



Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×