Fótbolti

Fagnaði nítján ára afmælinu í Chongqing með U21-árs landsliðinu og fékk köku

Anton Ingi Leifsson skrifar
Daníel tekur á móti kökunni.
Daníel tekur á móti kökunni. vísir/skjáskot
U21-árs landslið Íslands er nú í Kína þar sem liðið keppir á æfingarmóti með heimamönnum ásamt Mexíkó og Tælandi.

Liðið hélt til Kína í gær en KSÍ fékk boð frá kínverska knattspyrnusambandinu um að taka þátt á mótinu. Allir leikirnir í mótinu fara fram á hinum glæsilega Wanzhou Sport Center leikvanginum í Chongqing.

KA-maðurinn Daníel Hafsteinsson fagnar nítján ára afmæli sínu í dag og Kínverjarnir kunnu að fagna. Það var haldið upp á afmæli KA-mannsins er íslenski hópurinn borðaði á hóteli liðsins í dag.

Hinn nítján ára gamli Daníel fékk glæsilega köku í tilefnu dagsins en hann er einn fjórtán leikmanna sem spila á Íslandi í 22-manna hóp Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×