Innlent

Eldri kona flutt á sjúkrahús eftir umferðarslys við Egilsstaði

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Slysið varð rétt fyrir klukkan sjö í morgun.
Slysið varð rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Vísir/Vilhelm
Eldri kona var flutt á sjúkrahús eftir umferðarslys við Urriðavatn við Egilsstaði í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum varð slysið rétt fyrir klukkan sjö í morgun. Bílnum var ekið utan vegar og hafnaði ofan í skurði.

Konan var vönkuð og meðvitundarlítil þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn og var hún flutt á sjúkrahús til aðhlynningar en ekki er talið að hún sé í lífshættu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×