Fótbolti

Íslendingar hittast í miðborg Brussel fyrir leik

Tómas Þór Þórðarson í Brussel skrifar
Það þarf að smyrja sig fyrir Víkingaklappið.
Það þarf að smyrja sig fyrir Víkingaklappið. Vísir/vilhelm
KSÍ er búið að selja 400 miða á landsleik Belgíu og Íslands sem fram fer á King Badouin-vellinum í Brussel á fimmtudagskvöldið klukkan 20.45 að staðartíma.

Þetta er síðasti leikur strákanna okkar í Þjóðadeildinni en liðið er nú þegar fallið niður í B-deild. Okkar menn geta enn þá náð 10. sæti heilt yfir og þannig verið í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn til undankeppni EM 2020.

Mikil spenna er á meðal Íslendinga í Belgíu fyrir leiknum en KSÍ er búið að selja 400 miða á leikinn. Þar af keypti Íslendingafélagið í Brussel 200 miða en það stendur svo fyrir hittingi á leikdag.

Íslensku stuðningsmennirnir ætla að hittast á staðnum O'Learys á hinu sögufræga Grand Place-torgi í miðborg Brussel klukkan 15.00 á fimmtudaginn og hita upp fyrir leikinn sem hefst svo seinna um kvöldið.

Mikið af Íslendingum búa í Brussel enda hér í borg tvö stærstu sendiráð Íslendinga og þá búa margir Íslendingar í Lúxemborg og koma einhverjir þaðan.

Leikur Belgíu og Íslands verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD á fimmtudaginn en upphitun hefst klukkan 19.00.

Uppfært: Lögreglan í Brussel vill síður að stuðningsmenn safnist á miðju Grand place. Stuðningsmenn Íslands munu hittast á O’Reilley’s sem er nálægt Grand place í miðborg Brussel.

Í kringum O’Reilley’s eru margir veitingastaðir og búast má við góðri stemningu. Lögreglan ætlar svo að fylgja Íslendingum með lest á völlinn klukkan 18.30. 


Tengdar fréttir

Meiðslalistinn lengist enn

Gylfi Þór Sigurðsson var síðastur til að bætast á langan meiðslalista íslenska landsliðsins. Átta verða fjarverandi vegna meiðsla í leikjunum gegn Belgíu og Katar. Íslenski hópurinn er reynsluminni en oft áður.

Arnór: Þýðir ekki að hanga í skýjunum

Stjarna Arnórs Sigurðssonar skín hátt þessa dagana, hann skoraði fyrsta markið í Meistaradeild Evrópu á dögunum og fylgdi því eftir með fyrsta deildarmarkinu fyrir CSKA Moskvu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×