Skoðun

Heimsæktu félagsmiðstöð í dag!

Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar

Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Margar félagsmiðstöðvar skipuleggja opið hús fyrir foreldra og unglinga, kynna starfsemi sína, starfsfólk kynnist foreldrum og bregður á leik með ýmsum uppákomum. Félagsmiðstöðvar eru ákaflega dýrmætur hluti af uppvexti, lífi og tilveru barna og unglinga. Þar starfa yfirleitt háskólamenntaðir stjórnendur og frístundaleiðbeinendur sem eru jákvæðar fyrirmyndir á mörgum sviðum. Starfið sjálft byggir á hugmyndafræði reynslunáms, forvarna og sjálfseflingar og sjálfstæðum verkefnum sem unglingar hafa frumkvæði að og byggja á áhuga þeirra. Það er gömul saga og ný að margir þurfa að koma að því að fylgja börnum og unglingum í gegnum uppvaxtarárin. Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur og sjálfsagður hluti af heildstæðri sýn okkar á menntun, innan veggja þeirra á sér stað nám og uppbygging þekkingar sem fylgja unga fólkinu okkar langt fram á fullorðinsár.

Frístundir og fagmennska

Árið 2001 hófst kennsla í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og skapaðist þá grundvöllur fyrir æskulýðsstarfsfólk til að afla sér sértækrar fagmenntunar hérlendis. Áður fyrr var ekki óalgengt að einstaklingar sem áhuga höfðu og reynslu af félagsmiðstöðva- og æskulýðsstarfi færu til Svíþjóðar eða Danmerkur í tómstundafræðinám. Samtök félagsmiðstöðva, Samfés, voru stofnuð árið 1985 og hafa byggt upp öflugt samstarf á landsvísu og standa fyrir árlegum viðburðum þar sem ungmenni koma saman og njóta sín, má nefna Samfestinginn sem er einn stærsti vímuefnalausi viðburður fyrir 13-16 ára unglinga, söngkeppni Samfés og hönnunarkeppnina Stíl þar sem sköpun ungmenna fær notið sín. Félag fagfólks í frítímaþjónustu var stofnað árið 2005 og er leiðandi í umræðu um fagmennsku og hlutverk starfsfólk á vettvangi frítímans. Þannig hafa verið tekin mikilvæg skref til að efla enn frekar það mikilvæga starf sem unnið er innan félagsmiðstöðva, ekki síst í því skyni að tryggja unga fólkinu okkar óformlegan vettvang til virkrar þátttöku í jafningjahópi. Oft var þörf en nú er nauðsyn, við sjáum merki um kvíða og vanlíðan meðal ungmenna, og hætta á félagslegri einangrun eykst samhliða aukinni tölvunotkun. Grunngildin í lífi okkar allra eru góð samskipti, félagatengsl og umhyggja og þetta eru einmitt stoðirnar í öflugu félagsmiðstöðvastarfi.

Félagstengsl og traust

Unglingsárin eru dásamlegur tími en líka flókinn. Sýnt hefur verið fram á það að unglingar sem taka virkan þátt í skipulögðu félagsmiðstöðvastarfi eru síður líklegir til að neyta áfengis eða vímuefna. Reynslan hefur einnig sýnt okkur að í félagsmiðstöðvum skapast traust milli starfsfólks og unglinga sem getur skipt sköpum þegar eitthvað bjátar á. Þannig leysir starfsfólk félagsmiðstöðvanna, í samstarfi við foreldra og skóla, mörg vandamál á vettvangi með því að grípa snemma inn í. Það er því ómetanlegt bakland sem foreldrar eiga í starfsfólki félagsmiðstöðvanna. Þegar unglingarnir sjálfir eru spurðir út í hvað sé skemmtilegast við að sækja félagsmiðstöðina í hverfinu sínu, þá svara þeir gjarnan: Starfsfólkið! Ég hvet alla foreldra til að þiggja boð frá félagsmiðstöð barna sinna og kíkja í heimsókn í dag eða kvöld, kynnast starfsfólkinu og eiga góða samverustund með unglingunum. Þeim tíma er vel varið. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×