Erlent

Fjölda fólks er enn saknað í Paradís og fleiri lík finnast

Samúel Karl Ólason skrifar
Björgunaraðilar leita að líkum í brunarústum í Paradise.
Björgunaraðilar leita að líkum í brunarústum í Paradise. AP/John Locher
Björgunaraðilar í norðurhluta Kaliforníu hafa fundið sex látna til viðbótar í bænum Paradise (Paradís á íslensku) sem gereyðilagðist nánast í mannskæðustu kjarr- og skógareldum ríkisins. Alls eru nú 48 látnir og er fjölmargra saknað. Ekki liggur fyrir með vissu hve margra er saknað en fyrr í vikunni var áætlað að þeir væru um 200 talsins.

Áður hafði mannskæðustu skógar- og kjarreldar átt sér stað í Griffith-garðinum í Los Angeles árið 1923. Þá dóu 29.

Yfirlit yfir fjölda þeirra sem er saknað verður gert opinbert á næstunni, samkvæmt fógeta Butte-sýslu í Kaliforníu. Þá er búið að kalla til um hundrað hermenn til að hjálpa björgunaraðilum við leitina í Paradise. Fógetinn sagði einnig að sex manns hefðu verið handteknir vegna rána í rústum bæjarins.

AP fréttaveitan ræddi við nokkra af íbúum bæjarins sem tókst að flýja undan eldunum en einn þeirra, Greg Gibson, segir hraða eldsins hafa verið ótrúlegan. Hann leitar nú að upplýsingum um nágranna sína sem er saknað.



Harold Taylor er 72 ára gamall en honum tókst að flýja. Hann fékk símtal á síðasta fimmtudag þar sem honum var sagt að yfirgefa heimili sitt og þá hafði eldurinn þegar náð upp að húsi hans. Taylor hafði ekki tíma til að taka neinar eigur með sér, aðrar en þær sem hann var klæddur í. Á leiðinni út úr bænum rakst hann á nágranna sinn sem vildi ekki flýja. Taylor reyndi að fá hann upp í bíl sinn en nágranninn vildi ekki fara.

Sá maður er nú týndur og er Taylor að reyna að komast að því hvort hann lifði af.

Hér má sjá drónamyndband sem birt var í gær og sýnir útlitið í Paradise.

AP ræddi einnig við Lindu Rawlings. Hún var í útilegu þegar eldurinn kom upp. Nágrannar hennar hleyptu þremur hundum hennar út úr girðingu þeirra svo þeir gætu komist undan eldinum. Nágrannarnir flúðu og hundarnir sömuleiðis. Nokkrum dögum síðar fundust hundarnir þar sem þeir biðu eftir eigendum sínum í rústum heimilis þeirra. Húsið hafði brunnið til grunna.

Talið er að um 90 prósent bygginga í Paradise hafi brunnið. AFP fréttaveitan ræddi við einn íbúa sem tók þá ákvörðun að yfirgefa bæinn ekki og reyna að verja heimili sitt. Honum tókst það en nágrannar hans voru ekki svo heppnir.


Tengdar fréttir

Draumur Íslendings í Paradís lifir enn

Anton Axelsson, Íslendingur sem rekur veitingastað í Paradís í Kaliforníu þar sem gríðarlegir skógareldar geysa, segist aldrei hafa séð annað eins.

Segist heppin og þakklát að sleppa frá skógareldum

Skógar- og kjarreldarnir í Kaliforníu eru orðnir þeir mannskæðustu í sögu ríkisins. Ólafía Einarsdótti, íbúi í West Hill í Kaliforníu, segir það mikla mildi að heimili hennar hafi sloppið við eldana.

Leit að látnum gæti tekið vikur

Það gæti tekið leitarhópa og rannsakendur vikur að finna lík allra þeirra sem hafa látist í skógareldum í Kaliforníu undanfarna daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×